Landsliðskonan Lenka Ptacnikova vann sinn annan sigur í röð á Summer Prague Open þar sem hún teflir ásamt Adam Omarssyni og Josef Omarssyni. Fimmta umferðin fór fram í dag. Josef náði einnig í sigur en Adam tapaði í beinni útsendingu.

Adam var sá eini í beinni útsendingu en hann hafði 2,5 vinning fyrir umferðina, eins og Lenka. Upp kom Nimzo-indversk vörn og úr varð mikil baráttuskák. Cedrid Pahud (2152) tefldi af miklum krafti og var óhræddur við að fórna peðum til að komast að hvíta kóngnum. Fór svo að sóknin bar ávöxt.

Lenka vann sinn annan sigur í röð er hún lagði pólskan skákmann Tomasz Motyl (1947) með svörtu. Josef náði einnig í sigur en hann lagði aftur skákmann frá Furstadæmunum, Al Mesafri Mesfer (1731).

Lenka hefur nú 3,5 vinning, Adam hefur nú 2,5 vinning en Josef hefur 2 vinninga.

Í sjöttu umferð er Lenka komin á sýningarborð þar sem hún mætir Matous Eret (2316) og hefur hvítt. Bræðurnir fá báðir andstæðinga frá Furstadæmunum.

Summer Prague Open er opið mót sem fer fram eins og nafnið gefur til kynna í Prag í Tékklandi. Alls taka 208 skákmenn þátt en þó aðeins einn stórmeistari en þó fjöldi titilhafa. Lenka er númer 40 í stigaröðinni, Adam er númer 81 og Josef númer 122

- Auglýsing -