Hannes að tafli.

Hannes Hlífar Stefánsson vann sigur í dag í fimmtu umferð á opnu móti sem ber nafnið VII Torneo Internacional Jugando con las Estrellas 2024  og fer fram á Kanaríeyjum.

Hannes hafði hvítt gegn kúbverskum kvenstórmeistara Yaniela Forgas Moreno (2217). Upp kom hollensk vörn, hið svokallaða Leningrad afbrigði. Eftir að Hannes komst inn í miðtaflið virtist hann alltaf hafa fulla stjórn á stöðunni og aðeins tímaspursmál hvenær veikleikar svörtu stöðunnar færu að segja til sín. Endaði Hannes á að klára dæmið með fínni tækni.

Hannes því með 4 vinninga af 5 og mætir spænskum FIDE-meistara Pedro Martines Reyes (2343) og hefur svart.

Keppendur á mótinu eru alls 120, langflestir spænskir. Titilhafar eru vel yfir þriðja tug og er Hannes númer 6 í styrkleikaröðinni en stigahæstur er Cristobal Villagra (2603) frá Chile. Enska heiti mótsins er „Playing with the Stars„.

- Auglýsing -