Mynd frá verðlaunaafhendingunni

Skáksumarið mikla heldur áfram! Vignir Vatnar Stefánsson vann vaskan sigur á Tenerife fyrir nokkrum dögum en er nú mættur til Kanarí ásamt þeim Aleksandr Domalchuk-Jonassyni, Degi Ragnarssyni og Alexander Oliver Mai.

Heilir 147 keppendur eru skráðir til leiks og þar af 11 stórmeistarar auk fjölda titilhafa! Vignir er stigahæstur á mótinu eftir glæsilega hrinu af sigrum undanfarnar vikur og mánuði.

Í fyrstu umferð má segja að skyldusigrar hafi unnist á línuna. Vignir hafði svart á efsta borði og mætti kvenn-kandídatameistara Lali Bibliashvili (1865) frá Georgíu.

Vignir tefldi af ákveðni og áræðni og tók strax yfir frumkvæðið með svörtu og var farinn að stjórna báðum vængjum borðsins í miðtaflinu og kláraði svo dæmið með snotrum taktískum leikjum.

Aleksandr, Dagur og Alexander unnu líka gegn stigalægri andstæðingum, fullt hús í fyrstu umferð.

- Auglýsing -