Fjórða umferð fór fram í dag á opna Festival Internacional de Ajedrez Ciudad de Gáldar 2024 á Kanaríeyjum. Íslensku keppendurnir fengu þrjá vinninga af fjórum mögulegum í dag.
Vignir Vatnar Stefánsson var vinningahæstur ásamt Degi Ragnarssyni með 2,5 vinning af 3 og mætti frönskum skákmanni FM Joachim Mouhamad (2260). Sá franski lét algjörlega valta yfir sig stöðulega í miðtaflinu, gaf hvítum d4-reitinn og svörtu reitina. Eitthvað sem fransmaður ætti að þekkja úr franskri vörn þó hér hafi verið sikileyjarvörn á borðum. Nokkuð einfaldur stöðulegur sigur hjá Vigni sem hann kláraði með nettri taktík í lokin.
Dagur fékk erfiðari pörun með 2,5 og tefldi upp fyrir sig gegn þýska stórmeistaranum Lev Yankelevich (2420). Dagur hafði svart og upp kom sikileyjarvörn, Rossolimo afbrigðið. Dagur tefldi af öryggi og virtist aldrei í vandræðum og náði góðu jafntefli.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson náði nokkuð auðveldum sigri gegn stigalægri andstæðingi. Aleksandr náði góðri taktík snemma í miðtaflinu og eftirleikurinn auðveldur.
Alexander Oliver Mai missti niður jafntefli gegn stigalægri andstæðingi með svörtu.
Staðan þá þannig að Vignir er efstur Íslendeninga með 3,5 vinning, Dagur og Aleksandr hafa 3 vinninga og Alexander Oliver hefur 2,5 vinning.
Í fimmtu umferðinni mætir Vignir stórmeistaranum reyndar Bojan Kurajica með svörtu. Aleksandr Domalchuk-Jonasson hefur hvítt á stórmeistarann Julen Luis Arizmendi Martinez og Dagur hefur hvítt á Nico Swirz. Alexander Oliver fær hvítt á spænskan CM.















