Guðrún Fanney Briem hefur tekið sæti í kvennalandsliði Íslands sem teflir á Ólympíumótinu í Búdapest 10.-23. september nk. Olga Prudnykova dró sig út úr landsliðinu af persónulegum ástæðum og tekur Guðrún Fanney sæti hennar. Guðrún Fanney verður þar með yngsti landsliðsmaður Íslands í skák frá upphafi en hún er fædd árið 2010.
Landslið Íslands í kvennaflokki eftir breytingu (borðaröð ekki ákveðin):
- WGM Lenka Ptácníková (2086)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2013)
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1938)
- Iðunn Helgadóttir (1837)
- Guðrún Fanney Briem (1764)
Liðsstjóri liðsins er FM Ingvar Þór Jóhannesson
- Auglýsing -

















