Lindaskóli að tafli í gær. Mynd: Birkir Karl.

Þremur umferðum af fimm er lokið á NM skólasveita sem fram fer í Bodø í Noregi.

Vatnsendaskóli, sem teflir í grunnskólaflokki, er í þriðja sæti með 7 vinninga af 12 mögulegum. Sveitin er tveimur vinningum fyrir neðan þær norsku og dönsku.

Sveitina skipa Mikael Bjarki Heiðarsson, Jóhann Helgi Hreinsson, Guðmundur Orri Sveinbjörnsson og Arnar Logi Kjartansson. Liðsstjóri er Birkir Karl Sigurðsson.

Vatnsendaskóli að tafli. Mynd: Birkir Karl.

Gríðarleg spenna er í barnaskólaflokknum. Þar er Lindaskóli í þriðja sæti með 9 vinninga – hálfum vinningi minna en norsku og sænsku sveitirnar. Strákarnir töpuðu nokkuð óvænt fyrir norsku sveitinni í gær sem grjóthörð. Spennandi dagur framundan.

Sveitina skipa Sigurður Páll Guðnýjarson, Engilbert Viðar Eyþjórsson, Örvar Hólm Brynjarsson, Birkir Hallmundarson og Nökkvi Hólm Brynjarsson. Liðsstjóri er Birkir Ísak Jóhannsson.

Mótinu lýkur í dag með 4. og 5. umferð.

Heimasíða mótsins

 

 

- Auglýsing -