Kampakátir Blikar í Vrnjacka Banja.

Næst-síðasta umferð á EM taflfélaga í Vrnjacka Banja í Serbíu fór fram í gær. Breiðablik vann góðan sigur gegn breskri sveit, Blackthorne og á sama tíma náðu Víkingaklúbbsmenn að leggja norska sveit frá Bærum að velli.

Blikar mættu enskri sveit þar sem elóstigin voru svipuð á flestum borðum að undanskildum þeim borðum þar sem Ledger-bræður mættu til leiks. Ledger bræður nátu hinsvegar jafntefli á fyrsta borði og sjötta borði en góðir sigrar hjá Hilmi Frey og Bárði dugðu til þess að draga vagninn. Naumur 3,5-2,5 sigur en sigur er sigur!

Víkingaklúbburinn mætti norskri sveit, Bærum. Greinarhöfundur á góðar minningar frá Bærum en þar tefldi hann tvær skákir í norsku deildakeppninni og þar á meðal eina bestu skák sem hann hefur teflt…eiginlega fullkomna skák samkvæmt tölvuforritum!

Elmi Saad Abobaker á fyrsta borði er nú með 2382 elóstig. Þegar greinarhöfundur tefldi með Bærum var hann ungur og efnilegur drengur, flóttamaður frá Sómalíu(fæddur 2006) og greinilega mikið efni á ferð. Bærum menn sáu vel um hann og gerðu honum kleyft að tefla mikið en hann og hans fjölskylda höfðu ekki mikið á milli handanna. Hann hafði þá rétt um eða undir 2000 elóstigum en greinilegt var að mikið bjó í honum og hann vann mikilvæga sigra í sínum skákum í þeim viðureignum sem ég tefldi með Bærum. Hann gerði jafntefli við Jóhann á efsta borði í gær.

Afmælisbarnið Björn Þorfinnsson náði í sigur fyrir Víkinga og sama gerði lánsmaðurinn Símon Þórhallsson og dugði það til 3,5-2,5 sigurs, ekki ósvipað og hjá Blikum.

Margeir og Óskar Bjarnason hjá Gambit Bonnevoie gerðu báðir jafntefli en þeir mættu einnig norski sveit.

Engar skákir íslensku liðanna voru sýndar beint.

Blikar með 7 vinninga fá erfiða sveit frá N-Makedóníu Gambit ASEE með Evgeny Romanov í fararbroddi sem er grjótharður skákmaður. Víkingaklúbburinn hefur 6 vinninga og mæta Wood Green frá Englandi, grjóthörð sveit með mikið af ungum skákmönnum.

Vert verður að fylgjast með úrslitaviðureign mótsins. Tékkneska liðið Novy Bor leiðir mótið með 11 vinninga en þeir mæta ótrúlegri sveit Super Chess frá Rúmeníu sem hafa 10 vinninga og verða að leggja Novy Bor að velli til að ná titlinum. Gukesh, Abdusattorov og Praggnanandhaa gætu stoppað partýið hjá Tékkunum!

Lokaumferðin er klukkutíma fyrr á ferðinni og hefst á hádegi og útsending 12:15 útaf 15-mínútna seinkun á leikjum.

Viðureignir dagsins


- Auglýsing -