
Íslensku keppendurnir á alþjóðlegu móti á Spáni, Colonia Sant Jordi, áttu sérdeilis fínan dag í gær. Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2452) gerði jafntefli eftir mikla rússíbanareið en í IM-flokknum unnu þeir Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2384) og Dagur Ragnarsson (2346) báðir sínar skákir. Ekki hægt að biðja um það mikið betra!
GM-flokkur
Eftir gott gengi í undanförnum umferðum (3,5 vinningur af 4) mætti Helgi alþjóðlega meistaranum Alexander Ostrovsky sem teflir fyrir Bandaríkin. Helgi fékk örlítið þægilegra tafl út úr byrjuninni en aldrei nægjanlega mikið til þess að tefla til vinnings.
Á endanum fór það svo að Helgi skrapp með skrekkinn. 30. leikur hans, 30.Rb5?? var skelfilegur og hefði getað kostað hann skákina.
30…Dxd5 31.cxd5 Kf8 var rökrétt framhald en eftir 32.Rxd6 Bxa4 33.Rb7? lék svartur 33…Bb5? sem hélt vinningsmöguleikum en….
33…e4!! hefði verið ansi flottur leikur. 34.Rxc5 exd3 35.Rxd3 Bc2 sýnir þá hvað riddarar eiga erfitt með kantpeð og svartur vinnur.
Framhald skákarinnar gaf hvítum baráttumöguleika en á tímapunki var tölvumat -31 svörtum í vil! Helgi barðist og baráttan bar árangur
46…Kd2?? leyfði jafntefli eftir 47.Re2! c2 48.Rd4 þar sem hvítur skákar af nýja drottningu og nær kaupum á síðasta peði svarts. 46…Ke4 hefði verið nokkuð einföld vinningsleið (-32 í tölvunum!) þar sem biskups svarts á c4 mun á endanum „dóminera“ hvítan riddara sem verður að valda uppkomureitinn á c1.
Stundum er fínt að fá smá stríðsgæfu og stundum eiga menn það hreinlega bara inni!
Helgi hefur nú 5 vinninga af 8 mögulegum eftir þessa rússíbanaskák!
IM-flokkur
Aleksandr Domalchuk-Jonasson mætti heimamanni, spænskum FIDE meistara að nafni Omar Garcia Blanco (2377). Blanco setti mikla pressu á Aleksandr í byrjuninni en Aleksandr stóð af sér fyrstu bylgu stórárásar hvíts og þegar skothríðin tók að minnka tók Aleksandr fljótt yfir stöðuna og náði sér í góðan sigur.
Dagur mætti alþjóðlegum meistara og fékk furðu þægilega stöðu út úr Reti-byrjuninni og mjög þægilegt endatafl. Einhversstaðar fór þá þráðurinn og svartur jafnaði taflið.
Dagur hafði hinsvegar gott tímaforskot og það kom að góðum notum þegar svartur lék 39…Ke6?? þegar 39…Kg6 ætti að gefa svörtum auðvelt jafntefli. 40.Hxe5+ kom í kjölfarið og g-peðið tryggði hvítum sigurinn!
Eftir sjö umferðir hefur Aleksandr 5.5 vinning og Dagur er með 4.5 vinning, fínast árangur hjá báðum.
Taflmennska heldur áfram á morgun í báðum flokkum, lokaumferð í flokki Helgi en tvær eru eftir í IM-flokki.















