Evrópukeppni taflfélaga lauk í dag í Vrnjacka Banja í Serbíu. Sveit Novy Bor frá Tékklandi varð Evrópumeistari að þessu sinni eftir góðan sigur í lokaumferðinni. Breiðablik vann stóran og flottan sigur á makedónskri sveit en Víkingaklúbbsmenn lágu í valnum gegn Wood Green frá Englandi.
Blikar mættu makedónksri sveit GAMBIT ASEE og áttu hreinlega frábæran dag! Miðað við elóstig reynslu hefðu makedónarnir átt að vera sigurstranglegri en Blikar gáfu engan afslátt og slátruðu viðureigninni 4,5-1,5! Glæsileg úrslit. Vignir, Hilmir, Bárður og Benedikt unnu sínar skákir.
Víkingaklúbburinn mætti enskri sveit með mikið af hættulegum ungum skákmönnum. Björn Þorfinnsson stóð vaktina og vann sína skák en lítið annað féll með Víkingaklúbbnum í þetta skiptið. 2-4 tap niðurstaðan.
Engar skákir íslensku liðanna voru sýndar beint. Margeir og Óskar gerðu jafntefli í sínum skákum í liðssigri sveit þeirra frá Lúxemburg.
Tékkneska liðið Novy Bor tók titilinn og fengu 13 vinninga eftir að hafa lagt Super Chess frá Rúmeníu að velli í lokaumferðinni. Þeir náðu að halda jafnteflum gegn Gukesh, Abdusattorov og Praggnanandhaa og náðu sér í vinning á 5. borði, Anton Guijarro var hetjan.
Blikar enduðu með 9 vinninga sem skilaði 22. sæti sem er töluvert hærra en „starting rank-ið“ sem var númer 40! Hilmir Freyr var bestur Blika með 5 vinninga af 7 og hækkar um 12 stig.
Víkingar enduðu með 6 vinninga sem skilaði 51. sæti sem var ca. á sama stað og 49. sætið sem lagt var út með, einu sæti ofar en sveit Margeirs og Óskars frá Lúx. Björn Þorfinnsson dróg vagninn hjá Víkingaklúbbnum með 5 vinninga af 7 ásamt Símoni Þórhallssyni.
Skemmtileg keppni að baki og vonandi verða jafnvel fleiri íslensk lið meðal keppenda á næsta ári!