Tvær umferðir fóru fram í dag á Uppsala Young Masters. Íslensku keppendurnir og TR-ingarnir Adam Omarsson (2001) og Benedikt Þórisson (2000) halda á lofti merki ungra skákmanna frá Íslandi og standa sig með prýði.

Fimmta umferðin var erfið. Adam hafði hvítt gegn FM Axel Falkevall en missti þráðinn snemma í miðtaflinu og fékk mjög erfiða stöðu og tapaði liði.

Benedikt átti líka erfiða skák með svörtu í Grunfeld og fékk erfitt tafl eftir góðan undirbúning hvíts í hvassri h4-línu.

Betur gekk í sjöttu umferð hjá Benedikt sem gerði jafntefli við stigahærri skákmann. Báðir misstu af færum og mögulega hefði Benedikt getað teflt lokastöðuna áfram til vinnings skiptamun undir en það hefði auðvitað verið nokkur áhætta í því einnig.

Adam náði sigri með svörtu, hann lagði Julíu Ostensson að velli í baráttuskák. 33.Bc5?? reyndist gefa Adam gott færi.

33….Re4! 34.Bd4 Rg3+ 35.Kh2 Bxe3 og vinnur mann útaf gafflinum á f1

Eftir sex umferðir hefur Adam 3,5 vinning en Benedikt hefur 3 vinninga.

- Auglýsing -