Áskell á toppnum Haustmóti SA.

Alþjóðlegi meistarinn Áskell Örn Kárason gerði jafntefli í sjöttu umferð á EM 65+ á Lignano í Ítalíu. Áskell hafði svart gegn sænskum skákmanni Conny Holst (2112).

Skák Áskels var ekki í beinni þar sem hún var á 14. borði en tólf efstu borðin ná í útsendingar.

Því miður verður Áskell á 13. borði í 7. umferð, rétt undan útsendingarborðanna. Áskell fær hvítu mennina gegn FM Alain Fayard (2153).

Áskell hefur 3,5 vinning af 6 og situr í 26. sæti. Zurab Sturua er nú einn efstur með 5,5 vinning.

- Auglýsing -