Unglingamótinu í Uppsala, Uppsala Young Masters lauk í dag með tvöfaldri umferð. Íslensku keppendurnir og TR-ingarnir Adam Omarsson (2001) og Benedikt Þórisson (2000) fóru í gegnum daginn taplausir!
Í áttundu og næstsíðustu umferð náði Benedikt í góðan sigur með svörtu gegn Elias Kingsley (2049). Upp kom enskur leikur og var sigur Benedikts aldrei í hættu. Hvítur missti snemma þráðinn og tapaði skiptamun og eftirleikurinn varð auðveldur.
Adam gerði jafntefli í sinni skák þar sem hann hafði svart. Lengst af var Adam að berjast fyrir að jafna taflið en undir lokin voru sénsarnir alfarið hans megin…Adam missti af vænlegum leiðum og jafntefli niðurstaðan.
Einhver þreyta var greinilega til staðar í lokaumferðinni því Adam fékk algjörlega kex-unnið tafl en náði ekki að klára gegn Vidar Seiger (1997). Svekkjandi endir á annars fínu móti hjá Adam.
Skák Benedikts í lokaumferðinni var öllu rólegri og virtist allan tímann stefna í jafntefli sem varð og niðurstaðan!
Lokaniðurstaðan varð sú að Adam endaði með 5 vinninga en Benedikt með 4,5 vinning. Báðir högnuðust þeir nokkuð vel á FIDE-stigum við þennan árangur sem ber að fagna! Axel Falkevall og Adrian Soderstrom komu jafnir í mark með 7,5 vinning af 9 mögulegum.
Adam endaði í 4. sæti og Benedikt í skiptu 5. sæti.


















