Heimkaupsmótið – Íslandsmót ungmenna (u8-u16) fer fram laugardaginn 2. nóvember í hinu nýja glæsilega íþróttahúsi Miðgarði í Garðabæ. Sunnudaginn, 3. nóvember fer fram Íslandsmót barna- og unglingasveita.
Mótið hefst kl. 13 og er teflt í fimm aldursflokkum. Keppendur skulu mæta eigi síðar en kl. 12:40 og staðfesta mætingu. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm.
Afar góð verðlaun verða í boði. Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2025 sem fram fer í Hörpu.
8 ára og yngri (f. 2016 og síðar)
Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.
9-10 ára (f. 2014 og 2015)
Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.
11–12 ára (f. 2012 og 2013)
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 2.
13–14 ára (f. 2010 og 2011)
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.
15–16 ára (f. 2008 og 2009)
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.
Skráning og greiðsla þátttökugjalda
SportAbler – skráning uppfærist daglega á Chess-Results
Skráningafrestur rennur út föstudaginn, 1. nóvember kl. 13
Verðlaun
Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasætum gilda oddastig. Þó skal tefld aukakeppni um Íslandsmeistaratitla í þremur elstu aldursflokknum.
Verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni í hverjum flokki.
Allir Íslandsmeistarar frá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2025
Áskriftir frá Chess.com í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum flokkum.
Í u8/u10/u12 verða þriggja mánaða áskrift af ChessKid. Í flokkum u14/u16 verða þriggja mánaða áskrift af Chess.com.
Efsti einstaklingur í u16 fær námskeið á vegum í ECU í verðlaun. Nánar hér.
Þrír efstu í öllum flokkum fá verðlaunabikar.
Allir keppendur verða leystir út með smá glaðningi.
Þátttökugjöld eru kr. 2.000 kr. Systkinaafsláttur er 25%.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskák- eða hraðskákstiga eftir því sem við á.
Nánar um oddastig
Allir við alla: 1. Sonneborn-Berger, 2. Innbyrðis úrslit, 3. Fjöldi sigra 4. Hlutkesti
Opnir flokkar: 1. Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi vinningsskáka 6. hlutkesti