Tíunda umferðin reyndist íslensku keppendunum erfið á EM einstaklinga í Petrovac í Svartfjallalandi. Vignir Vatnar varð að gera sér jafntefli að góðu þrátt fyrir hetjulega barátu með svörtu gegn GM Neverov. Aðrir misstu góðar stöðu niður í jafntefli og jafnvel tap og enginn íslenskur sigur í hús í tíundu umferðinni.
Vignir Vatnar Stefánsson stóð sem fyrr best að vígi fyrir umferðina með 5,5 vinning eftir nokkuð gott mót. Guðmundur hafði 4,5 vinning en Hannes, Helgi og Aleksandr 4 vinnninga.
Vignir hafði svart og mætti eins og áður sagði úkraínska stórmeistaranum Valery Neverov. Upp kom frönsk vörn, advance variation og Vignir var snemma búinn að jafna taflið. Neverov hálf „drap“ taflið með b4 framrás sinni og Vignir þurfti einhver mistök frá hvítum til að geta teflt til vinnings. Vignir pressaði lengi á tíma og á stöðunni en taflið var of einfalt og þrátt fyrir að Vignir kæmist peði yfir inn í hróksendatafl dugði það ekki til.
Guðmundur Kjartansson hafði svart gegn alþjóðlegum meistara frá Ísrael. Guðmundur var í engum vandræðum og hafði alltaf aðeins betra í miðtaflinu. Örlítið virtist vanta upp á til að Guðmundur hefði nægan slagkraft í stöðunni til að pressa til vinnings en hvítur átti nóg á tankanum til að bjarga taflinu án vandkvæða.
Pólski alþjóðlegi meistari kvenna, Anna Kubicka (2235) ætlar að reynast okkar mönnum ansi erfið. Fyrr á mótinu gerði hún jafntefli gegn Hannesi þar sem Hannes stóð illa í taflinu. Anna tefldi af miklum krafti í dag gegn Helga Áss og fórnaði peðum fyrir sókn og gríðarlega sterkan biskup á d4 sem gerði vörnina ansi erfiða. Helgi náði með seiglu að vinna sig inn í skákina, fórna skiptamun á þennan sterka biskup og fá mjög vænlegt tafl með hættuleg frípeð.
Þreytan virðist vera farin að segja til sín hjá eldri keppendum okkar á þessu móti því Helgi var sleginn skákblindu og lék af sér heilum og hreinum manni og tafl hans vonlaust eftir það. Þriðja tapskák Helga í röð.
Hannes var með mjög vænlegt endatafl gegn ísraelskum CM en náði ekki að nýta sér það og varð að sætta sig við jafntefli.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson virtist í góðu málum í sinni skák í byrjun og miðtafli en í miklum flækjum í miðtaflinu gerði hann taktísk mistök og staðan ekki viðbjargandi eftir það.
Úrslit umferðarinnar
Slök umferð og menn greinilega orðnir þreyttir. Vænlegar stöðu fór forgörðum og enginn náði að leggja stigalægri andstæðing að velli. Vignir stendur enn best með 5,5 vinning í 75. sæti.
Serbinn sókndjarfi Alexander Indjic er efstur fyrir lokaumferðina með 8,5 vinning en mætir Belganum unga Daniel Dardha sem hefur 8 vinninga og gæti stolið titlinum með hvítu í lokaskákinni. Jafntefli tryggir Indjic titilinn. Níu skákmenn hafa 7,5 vinning en eiga ekki möguleika á titlinum.
Pörun í 11. umferð
Í lokaumferðinni halda áfram erfið verkefni gegn stigalægri skákmönnum sem eru ekki líklegir til að gefa neitt eftir. Hannes og Helgi óskuðu eftir að verða ekki paraðir í lokaumferðinni sem var í boði frá mótshöldurum.
Lokaumferðin er 2 klukkustundum fyrr á ferðinni og hefst því um hádegi á íslenskum tíma.
Flestir af sterkustu virku skákmönnum þjóðarinnar taka þátt að þessu sinni. Íslensku keppendurnir eru:
Vignir Vatnar Stefánsson (2530) nr. 86
Hannes Hlífar Stefánsson (2485) nr. 116
Guðmundur Kjartansson (2470) nr. 122
Helgi Áss Grétarsson (2441) nr. 139
Aleksandr Domalchuk-Jonsson (2399) nr. 183

















