Tvö skemmtileg einvígi fóru fram í 8-manna úrslitum Íslandsmótsins í Netskák á sunnudaginn. Þeir Helgi Ólafsson og Hjörvar Steinn Grétarsson tryggðu sér sæti í undanúrslitum. Helgi lagði Braga Þorfinnsson í æsispennandi einvígi og Hjörvar lagði Jóhann Hjartarson að velli þar sem einnig var mjótt á mununum.
Einvígi Helga og Braga varð æsispennandi. Bragi fór betur af stað og komst í 2,5-0,5 eftir tvær sigurskákir, einni ansi góðri af hans hálfu en í þriðju skákinni missti Helgi af máti og féll svo á tíma í tvísýnni stöðu. Helgi klóraði í bakkann fyrir hléið og Bragi hafði vinning í forskot.
Einvígið jafnaðist en aftur komst Bragi yfir en nú svaraði Helgi með tveimur sigurskákum í röð og komst í 5-4. Bragi varð að vinna síðustu skákina með svörtu en Helgi hélt velli og lokatölur 5,5-4,5 Helga í vil.
Helgi því kominn í undanúrslit þar sem hann mætir Birni Þorfinnssyni.
Í seinna einvígi kvöldsins mættust Jóhann og Hjörvar. Taflmennskan var mjög stöðug og mjótt á mununum. Jóhann vann fyrstu skákina en Hjörvar svaraði með tveimur sigrum í röð en Jóhann jafnaði í 2-2 fyrir hléið.
Þegar leið á einvígið reyndist dagsformið sterkara hjá Hjörvari, hann vann þrjá skákir í röð og endaði hann á að ná sér í 5,5-3,5 sigur.
Hægt er að fylgjast með Íslandsmóti Símans í netskák á Sjónvarpi Símans og netrásum RÍSÍ
Keppendur tefla 10 skáka einvígi með tímamörkunum 3+2 þannig að fyrstur í 5,5 vinning vinnur einvígið. Fari 5-5 er gripið til bráðabana.
Lýsendur voru Ingvar Þór Jóhannesson og Björn Ívar Karlsson.
Styrktaraðilar eru:
COLLAB・Ljósleiðarinn・Síminn・Lengjan
Útsending frá 8-manna úrslitum:
















