Ísland á tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti barna í skák, sem fram fer á í Montesilvano á Ítalíu dagana 15.-26. nóvember. Í dag lauk fimmtu umferð þar sem Birkir Hallmundarson náði sér í nokkuð auðveldan og góðan sigur.

Birkir Hallmundarson teflir í flokki 12 ára og yngri og vann sína skák í dag og hefur 3 vinninga að loknum fimm umferðum.

Birkir Hallmundarson

Andstæðingur Birkis í 5. umferð var S-Kóreu maður sem beitti London-kerfi. Birkir tapaði gegn greinarhöfundi í sama afbrigði á Atskákkeppni Taflfélaga og virðist hafa lært af reynslunni og náði að kæfa sókn hvíts í fæðingu og vinna strax lið.

Birkir hefur 3 vinninga eftir þessa skák.

Dagur Sverrisson

Dagur Sverrisson teflir í flokki 8 ára og yngri. Dagur varð að sitja hjá í 5. umferð vegna veikinda en kemur vonandi sterkur inn fljótlega. Dagur hefur 2 vinninga úr 4 tefldum skákum. Mót þetta er góð reynsla fyrir Dag.

Umferðir hefjast kl. 14:00 að íslenskum tíma og má gera ráð fyrir að beinar útsendingar verði aðgengilegar 15 mínútum síðar.

Beinar útsendingar
Chess-results

- Auglýsing -