tg

 

Skákþingi Garðabæjar lauk í dag þegar sjöunda og síðasta umferðin var tefld.

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson gerði engin mistök í dag og vann Benedikt Briem og tryggði sér um leið efsta sætið í mótinu og þar með sigurinn i mótaröðinni allri. Hann hlýtur í fyrstu verðlaun samtals 50 þús.

Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson vann

Lenku Ptacnikovu. Dagur Ragnarsson vann Gunnar Erik og Harald Björnsson vann Jóhann Ragnarsson í mjög spennandi og skemmtilegri skák.

Í 2-5 sæti urðu því Dagur Ragnarson, Hilmir Freyr, Lenka og Harald.

Taflfélag Garðabæjar

Þau skipta með sér 20 þús krónum.

Það þýðir líka að Dagur, Lenka og Harald munu þurfa að há aukakeppni um titilinn Skákmeistari Garðabæjar og þau Lenka og Harald munu í sömu aukakeppni berjast um titil skákmeistara TG. Þessi aukakeppni verður í fyrsta lagi í vikunni 3. Til 7. desember næstkomandi.

Lokastöðuna má sjá með því að smella hér.

Verðlaunaafhending er á Hraðskákmóti Garðabæjar sem haldið verður mánudaginn 25. Nóvember.

Skráning í hraðskákmótið og nánari upplýsingar hér

En þá að Brim mótaröðinni.

Taflfélag Reykjavíkur í samstarfi með Skákfélaginu Goðanum og Taflfélagi Garðabæjar BRIM skákmótaröðina 2020 til 2024.

Haldin voru 6 helgarskákmót, fjögur í TR, eitt á Húsavík og lokamótið verður í Garðabæ

Brim er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar ásamt Skáksambandi Íslands. Keppt var um glæsileg verðlaun. 350 þús. króna verðlaunasjóður er fyrir bestan samanlagðan árangur í stigakeppni þar sem fjögur bestu mót hvers skákmanns gilda

Mót 1. TR 19.-.21. júní 2020.
Mót 2. TR 26.-28. febrúar 2021.
Mót 3. TR 11.-13. júní 2021.
Mót 4. Goðinn – Húsavík 25.-27. mars 2022.
Mót 5. Boðsmót TR 2.-4. júní 2023.
Mót 6. Skákþing Garðabæjar 22. nóv til 24. nóv. 2024.

Sigurvegarar mótaraðarinnar eru
1. Vignir Vatnar Stefánsson sem hlýtur 125 þús (44 stig)
2. Davíð Kjartansson sem hlýtur 75 þús. (34 stig)
3. Lenka Ptacnikova sem hlýtur 50 þús. (30 stig)

Aukaverðlaun fá U1900 (skákstig í júní 2020) 33 þús.

Gunnar Erik Guðmundsson og Benedikt Þórisson 25 stig úr 3 mótum hjá þeim báðum. Þeir skipta væntanlega þessum verðlaunum á milli sín. (Fyrirvari á hraðskákmóti morgundagsins þar sem eitt aukastig er í boði fyrir sigurvegara mótsins)

17 ára og yngri (miðað við árið 2020) 33. Þús

Benedikt Briem 32 stig. (4 mót)

Vignir Vatnar sigraði reyndar þennan flokk en þar sem hann hlýtur aðalverðlaun fær hann ekki þessi verðlaun líka

Kvennaflokkur.  33 þús.

Batel Goitom Haile. 16 stig  (2 mót).

Lenka sigraði þennan flokk örugglega en hlýtur aðalverðlaun þannig að líkt og í flokki 17 ára og yngri þá fara verðlaunin til þess sem lendir í 2 sæti.

Verðlaun verða afhent að loknu hraðskákmóti Garðabæjar sem haldið verður mánudaginn 25. Nóvember í Miðgarði í Garðabæ.

Til upplýsingar um efstu sæti í hverjum flokki.

Aðalkeppni.

Vignir Vatnar Stefánsson 44
Davíð Kjartansson 34
Lenka Ptacnikova 30
Hilmir Freyr Heimisson 20
Alexander Oliver Mai 17
Örn Leo Johannsson 16
Símon Þórhallsson 12

 

U1900

Gunnar Erik Guðmundsson 25
Benedikt Þórisson 25
Ingvar Wu Skarphéðinsson 22
Adam Omarsson 22
Mikael Bjarki Heidarsson 21

 

17 ára og yngri

Vignir Vatnar Stefánsson 50
Benedikt Briem 32
Arnar Milutin Heiðarsson 29
Adam Omarsson 24
Gunnar Erik Guðmundsson 21
Benedikt Þórisson 21
Mikael Bjarki Heidarsson 20

Konur

Lenka Ptacnikova 48
Batel Goitom Haile 16
Iðunn Helgadóttir 14
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 9
Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir 9
Guðrún Fanney Briem 9
Lisseth Acevedo Mendez 6

 

 

 

 

- Auglýsing -