Þrír Íslendingar tefla á London Chess Classic sem fram fer á Emirates vellinum, heimavelli Arsenal. Íslendingarnir þrír taka þátt í Masters sem er opið mót þar sem 85 skákmenn taka þátt í Masters flokki og er Raunak Sadwhani stigahæstur keppenda. Vignir Vatnar er númer 6 í stigaröðinni, Björn Þorfinnsson númer 26 og Björn Hólm Birkisson númer 54.
Að loknum þremur umferðum er Vignir að standa sig best Íslendinganna með 2,5 vinning en tvær skákir voru tefldar í gær, laugardag.

Í fyrri skákinni í gær tefldi Vignir traust gegn Richard Bates með svörtu. Vignir beitti drottningarbragði og náði að brjótast fram á kóngsvæng og veita andstæðingi sínum skráveifu. Mótspilstilburðir Englendingsins kostuðu peð og þegar Vignir hafði tvö frípeð á drottningarvæng hugnaðist Richard ekki lengur að tefla vörnina og gafst upp.
Vignir varð að gera sér jafntefli að góðu í seinni skákinni með hvítt gegn búlgarska stórmeistaranum Marian Petrov. Lengst af hafði Vignir mikla stöðuyfirburði en Petrov náði að verjast í erfiðri Benoni stöðu, líklegast vanur því og hefur m.a. skrifað bók um Benoni byrjunina.
Í fjórðu umferð mætir Vignir breska stórmeistaranum Peter Wells. Wells er einnig bókarhöfundur og þjálfari. Bók hans um Trompowsky byrjunina fékk á sínum tíma góða dóma frá sjálfum Kasparov sem furðaði sig á því að svona „veikur“ skákmaður gæti skrifað jafn vel um byrjunina!

Björn Þorfinnsson átti ekki góðan dag. Í fyrri skák dagsins mætti hann Marcus Harvey, grjóthörðum ungum alþjóðlegum meistara. Björn fékk fína stöðu með svörtu í enska leiknum en lék skákinni niður í endatafli sem hefði átt að vera jafntefli.
Björn lék 61…Dd5?? sem leikur skákinni í tap. Hvítur fær aukatempó eftir 62.De6 til þess að komast með kónginn á g6 reitinn ef á þarf að halda. Hefði Björn leikið 61…Dd4 hefði hann getað svarað drottningarleikjum með …Kh7 sem heldur jafntefli.
Svekkjandi tap.
Í seinni skákinni mætti Bjössi kínverskum strák. Björn fórnaði manni í byrjuninni skemmtilega sem átti rétt á sér en Björn fylgdi því ekki rétt eftir. Liðsaflinn náðist ekki allur til baka og strákurinn tefldi ansi vel og náði að leggja okkar mann að velli.
Björn tók sér strategíska hjásetu í 4. umferð enda er hann að tefla mikilvægt einvígi í kvöld.

Björn Hólm Birkisson tapaði fyrri skák sinni í 2. umferð. Hann fór í drottningarkaup í endatafli sem kostaði punktinn. Einhverjir jafnteflismöguleikar hefðu verið fyrir hendi með drottningar á borðinu.
Í seinni skákinni mætti Björn efnilegustu stúlku heims, hinni 9 ára Bodhönu Sivanandan. Bodhana hefur þegar teflt með kvennalandsliði Englands á Ólympíuskákmóti þrátt fyrir mjög ungan aldur. Björn hafði hvítt og skákin virtist allan tímann stefna í jafntefli sem varð niðurstaðan.
Taflmennskan heldur áfram í fjórðu umferð í dag en Björn Þorfinnsson tók þó hjásetu.
















