Það er sannarlega nóg um að vera í skákinni hérlendis og erlendis þessa helgina. Undanúrslit Íslandsmótsins í netskák fara fram í kvöld og hefjast kl. 20. Búast má við hörkueinvígjum enda mikið undir, sæti í úrslitum!

Fyrst  fáum við einvígi þar sem mætast: Björn Þorfinnsson og Helgi Ólafsson.  Helgi lagði Braga, bróður Björns, í síðustu umferð og mun Björn vafalítið reyna að hefna í undanúrslitunum.

Fyrirfram má búast við Helga örlítið sterkari og metur Lengjan möguleika Helga sem sterkari og fæst stuðull 1.27 á Helga. Björn teflir frá London þar sem hann tekur þátt í London Chess Classic og hafi hann næga orku eftir taflmennsku dagsins þá fæst 3.09 í stuðul á Björn.

Helgi að tafli á HM öldungasveita!

Helgi verður að teljast líklegri en Björn er til alls vís og getur tekið sín færi eins og hann sannaði í 8-manna úrslitum þar sem hann lagði Hannes Hlífar að velli í dramatískri viðureign. Takist Helga að halda stjórn á skákunum og tímanotkun ætti hann að sigla í úrslitin. Björn þarf að treysta á hversu úrræðagóður hann getur verið í taktískum stöðum og takist honum að særa Helga snemma í einvíginu getur allt gerst.

Í seinna einvígi kvöldsins fáum við viðureign Hjörvars Steins Grétarssonar og Guðmundar Kjartanssonar. Hjörvar og Guðmundur hafa margoft teflt mikilvægar skákir í baráttu um Íslandsmeistaratitla. Hjörvar hefur þó átt betra gengi að fagna í hraðskák í gegnum tíðina. Lengjan metur möguleika Hjörvars töluvert betri.

Hjörvar hefur hæst náð 2849 stigum á Chess.com á meðan Guðmundur á best rétt undir 2700. Líklegt verður að teljast að tímastjórnun skipti miklu máli í þessu einvígi þar sem búast má við þungum stöðubaráttuskákum þar sem úrslitin ráðast alla jafna í tímahraksbarning. Takist Guðmundi að halda góðri tímastjórnun á hann möguleika á að ná í smá „upset“ í þessu einvígi er stuðll á hann 2.83 en Hjörvar er með 1.32 á Lengjunni.

Það má semsagt búast við æsispennandi einvígjum og hvetjum við alla til að fylgjast með Íslandsmóti Símans í netskák í kvöld í beinni í Sjónvarpi Símans og netrásum RÍSÍ

Keppendur tefla 10 skáka einvígi með tímamörkunum 3+2 þannig að fyrstur í 5,5 vinning vinnur einvígið. Fari 5-5 er gripið til bráðabana.

Lýsendur í kvöld eru Ingvar Þór Jóhannesson og Björn Ívar Karlsson. 

Styrktaraðilar eru:

COLLAB・Ljósleiðarinn・Síminn・Lengjan

- Auglýsing -