Vignir Vatnar og Benedikt Briem voru sigurvegarar helgarinnar á Ungmennameistaramóti Íslands U22 – Meistaramót Skákskóla Íslands. Vignir varð efstur á mótinu með fullt hús og varð þarmeð Ungmennameistari U22 en Benedikt varð hlutskarpastur á Meistaramóti Skákskóla Íslands.

Tefldar voru 6 kappskákir á fjórum dögum og margir af bestu og efnilegustu skákmönnum þjóðarinnar öttu kappi á reitunum sextíuogfjórum.

Teflt var við góðar aðstæður í Skákskólanum

Vignir hlaut 6 vinninga af 6 mögulegum en torsóttasti vinningurinn var mögulega í lokaumferðinni þar sem Mikael Bjarki veitti honum mikla mótspyrnu. Eins og svo oft áður var Vignir klár í bátana í endataflinu!

Benedikt Briem varð meistari Skákskólans. Tapaði einungis gegn Vigni en vann aðrar skákir. Í fimmtu umferð skall hurð nærri hælum þegar Benedik Briem mætti nafna sínum Þórissyni. Briem-Benni lét fanga riddara sinn á h7 í endataflinu en ekki var allt sem sýndist. Riddari hvíts og frípeð reyndust drottningunni skeinuhætt. Endatafl sem vert er að gefa frekari gaum!

Birkir Hallmundarson náði sér í flokkaverðlaun eftir sannkallað kraftaverk í lokaumferðinni! Andstæðingur hans, Þorsteinn Jakob, missti algjörlega einbeitinguna með gjörunnið tafl.

32.De4?? og hvítur varð mát eftir 32…Hf1+

Verðlaunlaunahafar:

1. sæti: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 100.000 kr. Þátttökuréttur í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands 2026 – Vignir Vatnar Stefánsson
2. sæti: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 50.000 kr. Benedikt Briem
3.–5. sæti: Úttekt hjá Chessable – Markús Orri, Gunnar Erik og Örvar Hólm

Stigaflokkaverðlaun:
1900 – 2100 elo:
1. verðlaun: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 40.000 kr.Benedikt Þórisson
1700 – 1900 elo:
1. verðlaun: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 40.000 kr. Birkir Hallmundarson

Skáksalurinn í Faxafeni bauð upp á fínar aðstæður og Björn Ívar Karlsson skólastjóri sá um skák- og tæknistjórn og mótshaldið gríðarlega vandað.

Chess-results
Skákirnar á lichess

- Auglýsing -