Aleksandr Domalchuk-Jonasson (Sasha) lauk í dag leik á opnu móti á Ítalíu 13th Festival Città di Palmanova. Um var að ræða opið mót með 64 keppendum og er okkar maður númer 8 í stigaröðinni.

Mótið hefur verið eilítið upp og ofan hjá Aleksandr, ekki frábært en ekki beint slæmt. Aleksandr yfirspilaði 2200+ stiga andstæðing sinn nokkuð sannfærandi í miðtaflinu í gær í áttundu umferð.

Í lokaumferðinni í dag tapaði Sasha eftir stöðubaráttu í ítalska leiknum þar sem báðir áttu sína möguleika en alþjóðlegi meistarinn Vid Dobrovoljc endaði á að hafa betur.

Aleksandr endaði mótið með 5,5 vinninga af 9 mögulegum og tapaði rúmlega 7 elóstigum. 11. sætið var niðurstaðan en okkar maður hóf leik númer 8 í stigaröðinni.

- Auglýsing -