Gullkynslóð íslenskra stórmeistara, Fjórmenningaklíkan svokallaða hóf í dag leik á HM öldungasveita sem fram fer í Prag í Tékklandi. Varla þarf að kynna þá Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson, Jón L. Árnason og Helga Ólafsson til leiks en stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson er einnig mættur til leiks til að lækka meðalaldurinn!

Íslenska liðið hefur ansi oft verið nálægt gullinu á þessum 50+ heims- og evrópumeistaramótum. Kannski eru ákveðin skilaboð fólgin í byrjunardagsetningu mótsins, 17. febrúar en það er einmitt afmælisdagur körfuboltagoðsins Michael Jordan. Fyrir ekkert alltof mörgum árum kom út heimildaþáttaröð sem bar nafnið „Last Dance“ eða síðasti dansinn. Þar sem nokkrar liðsmenn verða nú gjaldgengir í 65+ flokkinn má leiða að því líkum að mögulega sé þetta mót síðasti dansinn í 50+ flokknum fyrir þennan kjarna.

Möguleikar íslenska liðsins ættu að vera þokkalegir. Liðið er númer 3 í stigaröðinni og liðin í kring eru „usual suspects“. Sterkt lið Bandaríkjanna númer eitt, Englendingar númer tvö og svo koma Ítalir einu sæti á eftir Íslandi. Stærsti munurinn er kannski að nú eru fleiri og sterkari lið mætt til leiks. Alls taka 54 sveitir þátt á mótinu og í fyrstu umferð var íslenska liðið parað gegn kvennaliði Englands í þessum níu umferða móti.

Fyrirfram hefði mátt búast við nokkuð auðveldum sigri íslenska liðsins!

Íslenska liðið stigahærra á öllum borðum og skákirnar sýndu það meira og minna.

Jóhann hafði svart á fyrsta borði gegn alþjóðlegum meistara kvenna, Ingrid Lauterbach (2003) og útfærði skák sína frábærlega. Hann tefldi hratt og örugglega og passaði greinilega upp á að halda góðu tímaforskoti. Jóhann byrjaði á að bíða aðeins með stutta hrókun til þess að leyfa hvítum ekki að fá „sjálfkrafa“ kóngsindverska-árás og kóngssókn.

Í miðtaflinu tefldi Jóhann skynsamlega og bætti stöðu sína jafnt og þétt þar til þungi stöðunnar og tímaforskot svarts varð hvítum að falli.

Margeir varð 65 ára um helgina

Á öðru borði hélt Margeir Pétursson, sem hélt upp á 65 ára afmæli sitt um helgina, nokkuð góðri stjórn með hvítu mönnunum. Margeir fann skemmtilega taktík í miðtaflinu sem vann peð.

23.Hxd5! var skemmtilegur leikur. Ef 23…exd5 24.Rxd5 fylgir hvítur eftir með drápi á d7 og á svo í kjölfarið skák á f6. Svartur vann peðið til baka en í kjölfarið fékk hvítur „alla stöðuna“ og svartur missti loks þolinmæðina og fórnaði manni í hafið í erfiðri stöðu.

Á þriðja borði tefldi Petra Nunn lengst af mjög vel gegn Þresti og gaf honum í raun litla ef enga sénsa. Þröstur átti einhverja örlitla möguleika í endataflinu en tókst ekki að brjótast í gegn og jafntefli niðurstaðan. Oft erfitt að tefla með svörtu ef hvítur gefur í raun engin færi og teflir traust.

Á fjórða borði virtist Helen Frostick hreinlega frjósa í lokin og lék af sér hrók í lokin þó staðan hafi vissulega verið orðin erfið.

Niðurstaðan því 3,5-0,5 sigur sem eru nokkuð eðlileg úrslit.

Í 2. umferð mætir íslenska liðið England 2.

Nokkrir kunnuglegir kappar þarna, sérstaklega Stephen Dishman sem íslenska liðið ætti að vera farið að þekkja. Spurning hvort Clive Frostick komi fram hefndum fyrir konu sína?!

Heimsmeistaramótið í Prag eru níu umferðir og verður frídagur 22. febrúar að loknum fimm umferðum en að öðru leiti verður teflt á hverjum degi.

- Auglýsing -