Skákþing Akureyrar fyrir börn f. 2009 og síðar hefst nk. sunnudag. Stefnt er að því að tefla sjö umferðir skv. svissnesku kerfi, með eftirfarandi dagskrá:
Sunnudag 23. febrúar kl. 13.00 1-4. umferð
Miðvikudag 26. febrúar kl. 17.00 5-7. umferð
Umhugsunartími verður 10-3 (atskák)
Teflt verður um meistaratitla í tveimur aldursflokkunm:
Unglingaflokki (f. 2009-2012)
Barnaflokki (2013 og síðar)
Fyrirvari um fyrirkomulag:
Hugsanlegt ar að gerðar verði minniháttar breytingar á því fyrirkomulagi sem hér er auglýst þegar fjöldi þátttakenda liggur fyrir – til þess að auðvelda framkvæmd mótsins.
Þátttaka er ókeypis og mótið opið öllum áhugasömum börnum f. 2009 og síðar. Skráning fer fram með skilaboðum á askell@simnet.is, eða með því að mæta tímanlega á skákstað. Skráningu lýkur eigi síðar en fimm mínútum fyrir upphaf móts.














