
Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson höfðu báðir hvítu mennina í dag á Evrópumóti einstaklinga í skák þegar önnur umferð mótsins fór fram í Rúmeníu. Aðeins kom eitt jafntefli í hús.
Verkefni dagsins leit svona út:

Skák Vignis var svona eiginlega leiðinlega nákvæm. Báðir keppendur fengu gott skor í tölvureiknum, hátt accuracy og lágt acl. Tölvumatið fór hæst í +0.4 hjá Vigni en aldrei nóg til að ógna Tyrkjanum verulega. Traust taflmennska engu að síður og jafnteflin fylgja bara í þessum bransa, mikilvægt að tapa ekki í svona löngu móti og ná þessum +3 ca. sem þarf.
Skák Sasha við hinn reynda Parligras gekk ekki vel. Peðastaða Aleskandrs molnaði í miðtaflinu og sterkur riddari svarts á e5 varð svo kveikjan að mátneti í lokin.
Verkefni næstu umferðar er svona:

Svart á báða okkar keppendur og tvöfaldur sigur kæmi sér ansi vel!
Keppendur á mótinu í ár eru alls 375 og er Vignir númer 69 í stigaröðinni en Aleksandr númer 179. Heimamaðurinn Bogdan-Daniel Deac (2692), sigurvegari á síðasta Reykjavíkurskákmóti, er stigahæstur og eins er Alexey Sarana (2689) alltaf líklegur en fyrir aðeins 2 árum vann hann þrjú mismunandi evrópumót á sama ári þ.e. með mismunandi tímamörkum og bæði einstaklings- og liðakeppni! Tefldar eru 11 umferðir með einum frídegi. Mikið er í húfi en 20 efstu skákmenn mótsins komast á Heimsbikarmótið sem fram fer síðar á þessu ári.















