Friðrik við upphaf Reykjavíkurskákmótsin 2023 þar sem hann samfagnaði nýjasta kolleganum úr stórmeistarastétt, Vigni Vatnari.

Goðsögnin Friðrik Ólafsson lést föstudaginn 4. apríl, níræður að aldri. Friðrik Ólafsson fæddist 26. janúar 1935 og varð útnefndur stórmeistari í skák árið 1958, fyrstur Íslendinga.

Ferill Friðriks var einstakur; hann var sexfaldur Íslandsmeistari og og sigraði í hvert skipti sem hann tók þátt, fyrir utan sína fyrstu tilraun ungur að árum. Hann var þrefaldur sigurvegari Reykjavíkurskákmótsins og tók síðast þátt árið  2013, þá 78 ára. Eitt frægasta afrek Friðriks var án efa að komast alla leið í áskorendamót bestu skákmanna heims eftir frækna framgöngu á milisvæðamótinu í Portoroz 1958. Afrek Friðriks veittu hinu unga íslenska lýðveldi byr undir báða vængi.

Á ferli sínum vann Friðrik fjóra heimsmeistara í skák: Tal, Petrosian, Fischer og Karpov, þann síðasta sem ríkjandi heimsmeistara. Friðrik var forseti FIDE frá 1978-1982. Aðspurður hvort hann hefði aldrei unnið Spassky svaraði Friðrik og glotti um leið: “hann slapp”. 

Friðrik fetaði brautina fyrri þá sem á eftir komu.

Áhrif Friðriks á íslenskt skáklíf eru ómetanleg. Hann fetaði brautina fyrir aðra, og án hans má fullyrða að heimsmeistaraeinvígið í skák árið 1972 hefði aldrei farið fram í Reykjavík. Hann var þjóðhetja sem allir þekktu, fylgdust með og hvöttu áfram.

Tvær kynslóðir stórmeistara.
Friðrik var mikill húmoristi

Eftir að skákferlinum lauk tók hann við störfum sem skrifstofustjóri Alþingis, þar sem hann gegndi því starfi í um 20 ár. Ritstjórar Skák.is hafa einnig í gegnum tíðina haft gaman af hversu vel Friðrik fylgdist með skákum, nú síðast með því að fylgjast grannt með Boðsmóti Símans í netskák

Á persónulegu nótunum var Friðrik ekki aðeins stórmeistari á skákborðinu heldur einnig í fari og framkomu. Hann var hógvær, heillandi og hlýr, og naut mikillar virðingar jafnt innanlands sem utan. Við í skákhreyfingunni munum heiðra minningu hans og halda nafni hans á lofti með virðingu og þakklæti fyrir þau ómetanlegu áhrif sem hann hafði á íslenskt skáklíf.

Eftirmaður Friðriks sem forseti Arkady Dvorkovich samfagnaði honum á 90 ára afmælisdaginn

Reykjavíkurskákmótið sem hefst á miðvikudaginn átti að vera afmælismót Friðriks. Þess í stað munu ríflega 400 keppendur tefla Friðriki til heiðurs. Í Hörpu verður myndasýning með sýnishornum frá ferli hans. 

Friðrik í 90 ára afmælisvieslu sinni í Hörpu í janúar 2025. Áhrifarík mynd þar sem í bakgrunninum sinnir Friðrik ungu kynslóðinni, ekki þeirri fyrstu og ekki þeirri síðustu! (Mynd. Una Strand)

Fjölskyldu og vinum Friðriks vottum við samúð okkar.

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands
Ingvar Þór Jóhannesson, formaður Taflfélags Reykjavíkur 

- Auglýsing -