Varnarleikur íslenskrar skákar hélt áfram á fjórða keppnisdegi í Kronborg í Danmörku þar sem níu íslenskir skákmenn taka þátt í skemmtilegu flokkaskiptu móti. Augu flestra eru á stórmeistaranum Vigni Vatnari Stefánssyni og alþjóðlega meistaranum Degi Ragnarssyni en áttu erfiðan dag þar sem engin sigurskák kom í hús

GM-flokkur

Vignir byrjaði á því að tefla við gríska alþjóðlega meistarann Nikolaos Galopoulos. Í gær velti ritstjóri því fyrir sér hvort sá gríski væri með eindæmum morgunfúll eða hefði lítinn áhuga á skák þegar hann samdi örstutt með hvítu gegn Degi Ragnarssyni. Vonandi hefur það skot ekki kveikt í þeim gríska því hann gerði sér lítið fyrir og lagði Vigni að velli.

Vignir virtist misreikna eitthvað í miðtaflinu og vanmat greinilega drottningarfórn hvíts sem gaf honum gríðarlega virka menn og fljótlega var hvítur búinn að vinna lið.

Á sama tíma gerði Dagur frekar stutt jafntefli við danska stórmeistarann Sune Berg Hansen. Góð úrslit á pappír en keppendum verður að hrósa fyrir einn væmnasta þráleik sem sést hefur lengi!

Í áttundu umferð mættust svo Vignir og Dagur innbyrðis þar sem Dagur hafði hvítt. Bátarugganir voru í algjöru lágmarki og jafnteflið nokkuð friðsamt.

Vignir og Dagur hafa nú báðir 4,5 vinning af 8 mögulegum og eru vinningi á eftir gamla brýninu Sune Berg Hansen sem hefur 5,5 vinning með +3 og taplaus!

Masters 3: (2123-2156)

Adam Omarsson átti fínan dag og fékk 1,5 vinning en Lenka Ptacnikova var ekki í stuði og fékk hálfan vinnig. Adam hefur 3,5 vinning en Lenka 2 vinninga.

Masters 4: (2107-2123)

Björn Hólm Birkisson átti sinn besta dag, vann og gerði jafntefli og er með 50% 3 vinninga af 6.

Masters 7 (2008-2030)

Josef Omarsson gaf eftir í dag eftir frábæran dag í gær. í dag kom hálfur vinningur í hús og hefur Josef 3,5 vinning af 6 í sínum flokki.

Basic 3 (1796-1819)

Unnar Ingvarsson tekur þátt í Basic 3 flokknum og átti aftur fínan dag, vann og gerði jafntefli og hefur 3,5 vinninga eftir 6 skákir og er í 3ja sæti í sínum flokki.

Basic 4 (1750-1796)

Erlingur Jensson átti sinn besta dag og fékk 1,5 vinning í dag og hefur 3,5 vinning í heildina.

Basic 5 (1713-1750)

Lárus H. Bjarnason er algjörlega „á eldi“ í sínum flokki, vann báðar sínar skákir og hefur 5,5 vinning úr 6 skákum og er efstur í sínum flokki ásamt skákmanninum sem hann gerði jafntefli við.

Taflmennska í Masters og Basic flokkum klárast á morgun

- Auglýsing -