Suðurlandsmót Skákskólans – Júní 2025, verður haldið í félagsheimilinu Borg, Grímsnesi, sunnudaginn 8. júní klukkan 15:30. 

Klukkan 15:00 lýkur Suðurlandsnámskeiði Skákskólans.

Stórmeistarinn Vignir Vatnar mætir til leiks á morgun og teflir fjöltefli við krakkana í Suðurlandsnámskeiði Skákskólans klukkan 15:00, strax að loknu námskeiði. Hann tekur líka þátt í hraðskákmótinu. 

Mótið er opið öllum og eru sunnlenskir skákmenn hvattir til að fjölmenna.

Einnig gæti þetta verið hinn fínasti sunnudagsbíltúr frá Höfuðborgarsvæðinu. Frá Borg er stutt á ýmsa skemmtilega staði. Sólheima, Reykholt (þar eru t.d Friðheimar), Flúðir, Laugarvatn, Kerið, Laugarrás, Skálholt og svo mætti lengi telja. Einnig má nefna að á Borg er sundlaug.

Tefldar verðar fimm umferðir með tímamörkunum 5+3.Gera má ráð fyrir að mótið standi frá 15:30-16:30.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu 3 sætin í mótinu og efstu þrjú ungmennin frá Suðurlandi.

Ókeypis er fyrir þátttakendur í Suðurlandsmótinu en kr. 2000 fyrir aðra.

Skráningarform

Skráning á Chess-Results

 

- Auglýsing -