Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson hitaði upp fyrir komandi Íslandsmót með því að taka þátt í nokkuð sterkum lokuðum GM-flokki í Munchen. Guðmundur átti erfiðan miðkafla á mótinu og endaði með 3,5 vinning úr 9 skákum. Á dögunum náði Guðmundur að vinna Fischer-Random mót en náði ekki að fylgja þeim árangri eftir en hefur vafalítið náð af sér ryði fyrir Íslandsmótið.
Lettneski landsliðsmaðurinn Nikita Meskovs varð hlutskarpastur með 7,5 vinning. Guðmundur byrjaði eins og áður sagði vel en um miðbik móts fékk hann aðeins 1 vinning í 5 skákum og munaði um minna.

- Auglýsing -














