FIDE birti ný alþjóðleg skákstig í dag. Íslandsmótið á Blönduósi hafði mest áhrif á listann þennan mánuðinn en góður árangur Omarssona setur gefur þeim báðum um 100 stiga hækkun.

Stigahæstu skákmenn og konur

Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2509) er enn stigahæstur þrátt fyrir að missa 6 stig í mánuðinum. Olga Prudnykova (2271) er stigahæst skákkvenna.

Ungir og gamlir

Aleksandr Domalchuk-Jonasson er stigahæstur ungra Íslendinga. Adam Omarsson (2232) er kominn í annað sætið eftir Íslandsmótið.

Jóhann Hjartarson (2466) er stigahæstur á vizkualdrinum. Hannes Hlífar Stefánsson (2436) dregur á efstu menn eftir gott Íslandsmót.

Breytingar

Bræðurnir Adam og Jósef Omarssynir (2120) hækka sitthvoru megin við hundrað stigin eftir frábært Íslandsmót. Lárus H Bjarnason (1766) hækkar um 53 stig sem myndi setja hann á milli Adams og Jósefs ef hann væri með sama K-stuðul og þeir.

Flestar skákir

Fjórir titilhafar tefldu 18 skákir í mánuðinum

Nýir á lista

7 koma nýir inn á lista í mánuðinum. Þorleifur Ingvarsson (1837) er stigahæstur en meðal annarra sem koma nýir inn á lista er gaman að sjá Ólaf Ásgrímsson (1688) og sigurvegara sumarsyrpu TR Emil Finnson Fenger (1414).

- Auglýsing -