Tvöfaldur dagur var tefldur í dag á alþjóðlega 10th Marina Viva Porticcio Open 2025 en þá voru tefldar fimmta og sjötta umferð. Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson var eini Íslendingurinn í beinni en að loknum deginum hefur Hilmir Freyr náð honum að vinningum. Landsliðskonan Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir virðist einnig í ágætis gír.
Í efsta flokki eru íslensku keppendurnir eftirfarandi:
IM Hilmir Freyr Heimisson, IM Dagur Ragnarsson, WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir.
Í u2000 flokknum tefla:
Hrund Hauksdóttir og Verónika Steinunn Magnúsdóttir.
Tíu efstu borð eru í beinni í efsta flokki og Dagur var í beinni í dag í báðum umferðum, einn Íslendinga.
Í fyrri umferðinni tefldi Dagur skínandi góða skák og lagði stórmeistarann Bellachene frá Alsír að velli. Dagur yfirspilaði stórmeistarann í miðtaflinu. Skákin er hér að neðan með skýringum.
Dagur fékk kínverja á uppleið, Wang Hao, sem hefur hækkað mikið á stigum undanfarið. Wang þessi er nafni eins sterkasta skákmanns Kínverja. Dagur víxlaði leikjum snemma í byrjuninni og varð taflið strax erfitt og flæðið á skákinni varð þannig að stöðunni hrakaði hratt og Dagur laut í dúk.
Dagur hefur 4 vinninga að loknum þessum skákum.
Hilmir vann sig inn í mótið í dag með tveimur sigrum. Fyrst lagði hann Alexis Munier (2136) að velli með svörtu og svo vann hann með hvítu gegn Li Zhenyu (2206) með hvítu. Hilmir hefur nú 4 vinninga eins og Dagur.
Hallgerður tapaði fyrri skákinni gegn Abhijit Patil (2186) en vann svo seinni skákina gegn Alexis Munier (2136) sem er ekki líklegur í Íslandsheimsóknir á næstunni! Hallgerður hefur 3 af 6.
Jóhanna vann í fimmtu umferð en tapaði í sjöttu umferð og hefur 1 vinning.
Í B-flokki áttu Hrund og Veronika ágætis dag. Hrund vann eina og tapaði hinni en Veronika gerði jafntefli og vann. Hafa þær báðar 3 vinninga af 6.
Teflt er ein umferð á dag það sem eftir lifir móts. Sjöunda umferð á morgun.
- Heimasíða mótsins (hægt að velja umferðir og stöðu þar en ekki auðvelt!)
- Skákir á lichess
- Skákir á chess.com
- Úrslit í aðalmótinu
- Úrslit í u2000 flokknum















