Sjöunda umferð var tefld í dag á alþjóðlega 10th Marina Viva Porticcio Open 2025. Alþjóðlegu meistararnir Dagur Ragnarsson og Hilmir Freyr Heimisson voru í beinni útsendingu en áttu misjöfnu gengi að fagna. Dagur fékk verra tafl í byrjun en sneri því við og vann á meðan skákin hjá Hilmi þróaðist öfugt, Hilmir fékk þægilegra tafl í byrjun en missti svo tökin.
Í efsta flokki eru íslensku keppendurnir eftirfarandi:
IM Hilmir Freyr Heimisson, IM Dagur Ragnarsson, WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir.
Í u2000 flokknum tefla:
Hrund Hauksdóttir og Verónika Steinunn Magnúsdóttir.
Tíu efstu borð eru í beinni í efsta flokki voru Dagur og Hilmir í beinni eins og áður sagði.
Dagur hafði hvítt gegn kínverskum skákmanni Chen Muxi (2224). Dagur fékk enga stöðu úr byrjuninni og var kominn með hálfgerða Czech Benoni stöðu með skiptum litum, líklegast ekki það sem hvítur sækist eftir í byrjuninni! Þegar staðan var farin að halla á Dag ákvað hann hreinlega bara að tefla hratt og á innsæinu og náði smátt og smátt að bæta stöðuna og yfirspila andstæðing sinn. Kínverjinn endaði á að hreinlega fórna sig í hel en missti líklegast af einhverjum leikjum hjá Degi líka.
Hilmir hafði svart og fékk fína stöðu úr byrjuninni. Á einum stað hefði hann líklegast getað unnið peð en þess í stað má segja að kviknað hafi í borðinu og úr brunarústunum var það Indverjinn sem steig fyrstur út. Svekkjandi tap þar sem sigur hefði komið Hilmi í ágætis stöðu fyrir lokaumferðirnar.
Dagur hefur 5 vinninga að loknum 7 umferðum en Hilmir hefur 4 vinninga.
Hallgerður tapaði sinni skák með svörtu gegn Appolo Derrediere (2125). Hallgerður hefur 3 af 7.
Jóhanna gerði jafntefli í sinni skák og hefur 1,5 vinning.
Í B-flokki gerðu Hrund og Veronika báðar jafntefli við aðeins stigalægri andstæðinga og hafa báðar 3,5 vinning af 7.
Teflt er ein umferð á dag það sem eftir lifir móts. Áttunda umferð á morgun.
- Heimasíða mótsins (hægt að velja umferðir og stöðu þar en ekki auðvelt!)
- Skákir á lichess
- Skákir á chess.com
- Úrslit í aðalmótinu
- Úrslit í u2000 flokknum















