Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson náði að hrista af sér slenið í fimmtu umferð í lokuðum GM flokki sem hann tekur þátt í í Ceske Budojovice í Tékklandi. Hannes vann fínan sigur með hvítu mönnunum og sýndi hvað í honum býr „í pósanum“.

Hannes hafði hvítt og náði að vinna flottan stöðulegan sigur. Hannes náði að halda skákinni í stöðubaráttubarningi og forðast óþarfa flækjur. Fín skák að undanskildu einu augnabliki þar sem Hannes átti möguleika á flottri taktík.

Hér lék Hannes 28.Re2 sem heldur þægilega betra tafli á hvítt en 28.Rb3! hefði verið ansi öflugur. Riddarinn er friðhelgur vegna 28…Rxb3 29.Hg5 og svarta staðan hrynur eftir dráp og g7 og svo tilfallandi drottningarskákir á g3 eða b2 eftir atvikum.

Fín skák og vonandi að Hannes sé kominn í gang eftir rólega byrjun! Hannes hefur nú 2 vinninga úr 5 skákum.

Tefld er ein umferð á dag og heldur mótið áfram á morgun.

- Auglýsing -