Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli í dag í sjöundu umferð í lokuðum GM flokki í Ceske Budojovice í Tékklandi. Hannes hafði svart gegn stórmeistaranum Tomas Polak og var jafnteflið mjög öruggt.
Hannes komst vel frá byrjuninni og lenti í nánast engum vandræðum. Hannes komst peði yfir út í endatafl en hvítur hafði næga pressu til að lítið væri hægt að föndra frekar með það. Jafntefli niðurstaðan.
Hannes með 50% árangur, 3,5 vinning eftir 7 umferðir.
Guðni Stefán er í þokkalegum málum í opna flokknum, hefur unnið stigalægri og náð einu jafntefli „uppfyrir sig“ og er í stigagróða.
Tefld er ein umferð á dag og heldur mótið áfram á morgun.
- Auglýsing -


















