Lokaumferðin á alþjóðlega 10th Marina Viva Porticcio Open 2025 fór fram í morgun. Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson kláraði með stæl og vann sína skák gegn alþjóðlegum meistara. Þessi sigur tryggði Degi þriðja sætið á mótinu ásamt öðrum með 6,5 vinning af 9 mögulegum, aðeins hálfum vinningi á eftir efstu tveimur. Glæsilegur árangur hjá Degi!
Í efsta flokki voru íslensku keppendurnir eftirfarandi:
IM Hilmir Freyr Heimisson, IM Dagur Ragnarsson, WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir.
Í u2000 flokknum tefldu:
Hrund Hauksdóttir og Verónika Steinunn Magnúsdóttir.
Tíu efstu borð voru í beinni í efsta flokki og voru Dagur og Hilmir í beinni í lokaumferðinni.
Dagur hafði hvítt gegn franska alþjóðlega meistaranum Peio Duboue (2452). Upp kom caro-kann og fékk Dagur fljótt þægilega stöðu, svarta staðan var full af „svekkjum“, svartur var á eftir í liðsskipan og með verri kóng. A-peð Dags sá sér leik á borði og lagði á sprett upp sína línu og svartur náði ekki að stoppa peðið.

Flottur sigur hjá Degi og mjög þétt mót hjá okkar manni. Dagur tapaði aðeins einni skák gegn efnilegum Kínverja en var að öðru leiti nokkuð traustur, með smá baráttuþrek hér og þar. Skipta þriðja sæti sérdeilis prýðilegur árangur og árangur sem samsvarar 2532 elóstigum og hækkar því Dagur á stigum á mótinu.
Hilmir gerði jafntefli í lokaumferðinni. Ungur andstæðingur hans, CM frá Frakklandi gaf engin færi á sér með hvítu og varð Hilmir að sætta sig við jafntefli án þess að fá færi með svörtu mönnunum. Á móti var hann aldrei í teljandi vandræðum, jafntefli rökrétt úrslit.
Hilmir endaði með 5,5 vinning, ágætis lokaniðurstaða eftir brösuga byrjun á mótinu en árangur sem samsvaraði um 2200 elóstigum og lækkar Hilmir á stigum á mótinu.
Hallgerður tapaði gegn sterkum andstæðingi með 2258 elóstig í lokaumferðinni og endaði með 4 vinninga af 9. Árangur Höllu samsvaraði 2122 elóstigum og hún fær því einhver elóstig í ferðatöskuna.
Jóhanna vann sína skák í lokaumferðinni gegn Vistry Medant (1925) og kláraði Jóhanna með 3,5 vinning og endaði vel og lágmarkaði stigatapið.
Í B-flokki enduðu stelpurnar vel en bæði Hrund og Veronika unnu sínar skákir. Hrund endaði með 5,5 vinning en Veronika með 5 vinninga. Þær tapa báðar stigum á mótinu.
- Heimasíða mótsins (hægt að velja umferðir og stöðu þar en ekki auðvelt!)
- Skákir á lichess
- Skákir á chess.com
- Úrslit í aðalmótinu
- Úrslit í u2000 flokknum

















