Áttunda umferð var tefld í dag á alþjóðlega 10th Marina Viva Porticcio Open 2025. Alþjóðlegu meistararnir Dagur Ragnarsson og Hilmir Freyr Heimisson voru í beinni útsendingu og komust þokkalega frá deginum. Dagur er hálfum vinningi á eftir efstu mönnum í skiptu 5. sæti.

Í efsta flokki eru íslensku keppendurnir eftirfarandi:

IM Hilmir Freyr Heimisson, IM Dagur Ragnarsson, WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir.

Í u2000 flokknum tefla:

Hrund Hauksdóttir og Verónika Steinunn Magnúsdóttir.

Tíu efstu borð eru í beinni í efsta flokki voru Dagur og Hilmir í beinni eins og áður sagði.

Dagur hafði svart gegn stórmeistaranum Egor Bogdanov. Tefld var Petroffs-vörn og hélt Dagur jöfnu. Hann var undir nokkurri pressu lengi vel en náði að nýta sér mislita biskupa til að stýra taflinu í jafntefli.

Hilmir vann góðan sigur á stigalægri andstæðing. Hilmir fórnaði peði og fékk mjög hættulegt frumkvæði, stöður sem hann er almennt mjög góður í. Svartur fékk einn stað þar sem hann hefði getað kæft hvíta frumkvæðið í byrjun en eftir það virtist Hilmir alltaf líklegur til að klára dæmið.

Dagur hefur 5,5 vinning að loknum 8 umferðum og er í skiptu 5. sæti hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Hilmir hefur 5 vinninga og verða þeir báðir í beinni á morgun.

Hallgerður náði góðum sigri gegn Elenu Krasenkowu og er nú með 4 vinninga af 8.

Jóhanna vann sína skák gegn Cerise Castagnerol og hefur 2,5 vinning.

Í B-flokki vann Hrund sína skák og Veronika gerði jafntefli. Hrund hefur 4,5 vinning af 8 en Veronika 4 vinninga.

Lokaumferðin er á morgun.

- Auglýsing -