Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson vann sína aðra sigurskák í röð í sjöttu umferð í lokuðum GM flokki sem hann tekur þátt í í Ceske Budojovice í Tékklandi. Hannes vann fínan sigur með hvítu mönnunum og sýndi aftur hvað í honum býr „í pósanum“.
Hannes hafði hvítt og náði að halda skákinni á stöðulega nótunum eins og í gær. Hannes náði góðu taki á stöðunni gegn franskri vörn andstæðings síns. Pressa Hannesar á a-línunni og tak á svörtu reitunum skilaði sér í skemmtilegri taktík.
Síðasti leikur svarts var 27…Kf7? en Hannes sá 28.Rg5+ og eftir 28…Kg8 kom 29.Rxe6 og svarta staðan er að hruni komin.
Fín skák og Hannes kominn í gang og hefur nú 3 vinninga úr 6 skákum.
Tefld er ein umferð á dag og heldur mótið áfram á morgun.
- Auglýsing -













