Tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkissynir sitja nú að tafli í Frakklandi á opnu móti. Fimm umferðum er lokið og eru þeir báðir nokkurn veginn á pari það sem af er. Aðeins 8 borð eru sýnt beint og hafa þeir báðir komist einu sinni á sýningarborð og hafa báðir 3 vinninga að loknum 5 umferðum.

Björn Hólm tefldi á sýningarborði strax í fyrstu umferð. Þar mætti hann úkraínska stórmeistaranum Yuri Solodovnichenko og hafði hvítt. Yuri hafði betur og er hann efstur ásamt fimm öðru með 4,5 vinninga á mótinu.

Yuri tefldi hálfgerða „hippo-uppstillingu“og segja má að grunnurinn að sigri hans stöðulega hafi verið að ná svartreitabiskupnum en svartur fékk betra tafl í miðtaflinu útaf sínum eigin svartreitabiskup.

Björn hefur staðið sig vel eftir tapið, unnið skyldusigrana og gert tvö jafntefli við stigahærri skákmenn og hefur 3 vinninga eins og áður sagði.

Bárður var í beinni í 5. umferð og mætti frönskum stórmeistara, Joseph Girel. Bárður hafði svart og var lengst af með eitthvað verra en nálægt því að jafna taflið. Smátt og smátt náði stórmeistarinn undirtökunum, sérstaklega á drottningarvæng og frípeð hans þar reyndust of hættuleg.

Bárður hefur einnig 3 vinninga og hefur unnið sína skyldusigra en tapað fyrir tveimur sterkum skákmönnum.

Í dag er tvöföld umferð og mótinu lýkur svo á föstudaginn næstkomandi.

- Auglýsing -