Iðunn Helgadóttir á EM ungmenna í Prag 2024

Landsliðskonan Iðunn Helgadóttir (1876) tekur nú þátt í B-flokki á opna mótinu í Zadar í Krótatíu. 93 keppendur eru í B-flokki og er Iðunn númer 21 í stigaröðinni. Helgi Pétur Gunanrsson (1804), faðir Iðunnar, er einnig með á mótinu og er númer 37 í stigaröð.

Iðunn hafði byrjað vel og hafði 2,5 vinning að loknum 3 umferðum og mæti stigahærri skákmanni, Josif Kapetanic (1951). Skákin varð sveiflukennd. Josif náði miklum yfirburðum eftir að Iðunn missti niður örlítið betri stöðu snemma úr byrjuninni. Á tíma var Josif með hartnær unnið en 26. leikur hans Hf2 leyfði Iðunni að sýna góða varnartakta. Hvítur varð að leik 26.Kd2! og ætti að standa til vinnings.

Á laugardeginum náði Iðunn góðum sigri. Hún lagði Karel Bourban (1829) frá Sviss í vel útfærðri skák. Iðunn mætti kóngsindverskri vörn af fullum þunga og lét til skarar skríða á drottningarvæng. Stöðu svarts hrakaði hratt og skiptamunsfórn í örvæntingu dugði ekki til og Iðunn bægði hættunni örugglega frá og vann.

Í gær fékk Iðunn sinn erfiðasta andstæðing hingað til, David Horvat (2115) frá Króatíu. Í þetta skiptið gekk byrjunin ekki jafn vel og hvítur fékk slæma stöðu eftir óvenjulegan leik, 10.Dd3? og varð hvíta taflið fljótt óteflanlegt eftir það.

Eftir sex umferðir hefur Iðunn því 4 vinning og mætir Tomas Wilgosz í 7. umferðinni með svörtu.

Helgi Pétur hefur verið að rétta úr kútnum og hefur unnið tvær síðustu skákir sínar og hefur 3,5 vinning.

- Auglýsing -