Rúnar Ísleifsson vann sigur á stigum á Sumarskákmóti Goðans sem fram fór í nýju og glæsilegu aðstöðu skákfélagins í Túni á Húsavík. Rúnar fékk 5,5 vinninga af 6 mögulegum. Jakob Sævar Sigurðsson varð annar, einnig með 5,5 vinninga en endaði örlítið lægri á oddastigum en Rúnar. Kristján Ingi Smárason varð þriðji með 4. vinninga.

Lokastaðan.

1. Isleifsson, Runar 5.5
2. Sigurdsson, Jakob Saevar 5.5
3. Smarason, Kristjan Ingi 4.0
4. Gulyas Adam Ferenc 3.0
5. Adalsteinsson, Hermann 3.0
6. Akason, Aevar 3.0
7. Fernandez Garcia Sergio 3.0
8. Asmundsson, Sigurbjorn 2.0
9. Sergio Pinero 1.0

Mótið á chess manager.

Alls tók 9 skákmenn þátt í mótinu og þar á meðal nafnarnir tveir Segrio Pinero og Segio Garcia Fernadesz frá Spáni. Tefldar voru 6 umferðir með 10+2 tímamörkum.

Líklegt er að haldin verði skákæfing í ágúst en stefnt er að því að vetrarstafið hefjist forlega 25 ágús með skákæfingu og félagsfundi.

Sumarskákmótið var fyrsti formlegi viðburðurinn sem félagið heldur í Túni á Húsavík, en Goðinn er nýlega búinn að gera samkomulag við Norðurþing varðandi skákkennslu og félagsaðstöðu fyrir Goðann í Túni. Nánar verður skrýrt frá því samkomlagi síðar.

Nánar á Heimasíðu Goðans

- Auglýsing -