Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari kláraði í dag lokaumferðina á alþjóðlega mótinu VIII Internacional “Jugando con las Estrellas” sem fram fór á Las Palmas á Kanaríeyjum. Umfjöllun okkar skildi síðast við Hannes með 4,5 vinning að loknum 6 umferðum en hann hafði þá jafnað sig á slæmum skell í fyrstu umferð.

Í sjöundu umferðinni mætti Hannes ungum Kazaka. Hannes fékk aðeins betra tafl með svörtu og virtist stefna í stöðubaráttu sem ætti að henta Hannesi en þá lék hann af sér taktísk og varð að gefast upp.

Hannes hafði aftur svart í áttundui umferð og var mjög hætt kominn gegn FIDE meistara frá Burundi en náði að redda sér í vörninni.

Hannes náði skemmtilegu gegnumbroti í endatafli í 9. umferðinni til að rétta aðeins úr kútnum.

Lokaumferðin var teflt í botn, Hannes tefldi aggressíft með svörtu og ætlaði sér sigur en endataflið var of þurrt. Þjóðverjinn missti af vinningi á einum stað en það hefði ekki verið sanngjarnt miðað við hvernig skákin þróaðist.

Lokaniðurstaðan 6,5 vinningur af 10 og tapar Hannes 13,4 elóstigum á mótinu.

- Auglýsing -