FIDE meistarinn Bárður Örn Birkisson lauk í dag keppni á opna Bella Ítalía mótinu ásamt Birni Hólm. Bárður var taplaus eftir fimm umferðir þegar við skildum við hann síðast með 3,5 vinning. Eina tapskákin hans kom í 6. umferð. Bárður tapaði þar fyrir brasilískum stórmeistara sem þjarmaði jafnt og þétt að stöðu hans og náði svo mátsókn í lokin.
Á sama tíma lagði Björn indverskan skákmann að velli með hraustlegri taflmennsku með svörtu mönnunum í Kalashnikov.
Bárður náði ekki að nýta þægilegra miðtafl gegn S-afrískum skákmanni og varð á endanum að verja endatafl gegn drottningu andstæðingsins en hafði það allt undir öruggri stjórn.
Björn vann sína aðra skák í röð, hafði hvítt gegn Philidor og fékk þægilegra tafl. Í miðtaflinu vélaði Björn svo mann af heimamanninum og vann þægilegan sigur.
Bárður tefldi tíðindalitla skák með svörtu gegn malasískum FIDE meistara. Í endataflinu náði Bárður sér þó í bullandi færi og hefði átt að vinna skákina en hann náði ansi vænlegu tafli. Jafntefli þó niðurstaðan.
Björn tapaði í 8. umferð gegn andstæðingi Bárðar úr 7. umferðinni.
Bárður kláraði mótið með góðum sigri á indverskum skákmanni. Bárður henti í fórn á f7 og skilaði hún „hagnaði“ skömmu síðar þegar Indverjinn réði ekki við vörnina.
Björn náði góðum tæknisigri í lokaumferðinni enhann var einfaldlega betri heimamaðurinn Tellarini. Fínn seinni hluti mótsins hjá Birni.
Bárður endaði með 5,5 vinning og hækkar um 14 stig á mótinu en Björn endaði með 5 vinninga og hækkar um rúmlega eitt elóstig! Þrír brasilískir skákmenn röðuðu sér í þrjú efstu sætin með 7 vinninga af 9 mögulegum. Alls tóku 60 skákmenn þátt á mótinu.















