Haustmót TR hófst í gær og náðist næg þátttaka til að mynda þrjá lokaða flokka sem er sérlega gleðilegt! A-flokkurinn er gríðarlega sterkur og skemmtilegur með þrjár landsliðsmenn og fjölbreyttan keppendahóp. Í B- og C-flokkunum fá ungir skákmenn kærkomið tækifæri að etja kappi við keppendur á svipuðu stigabili.
A-flokkur
A-flokkurinn hófst með látum. Stigahæsti keppandinn, stórmeistarinn, Íslandsmeistarinn og landsliðsmaðurinn Vignir Vatnar Stefánsson mætti þá þeim næststigahæsta, alþjóðlega meistaranum og landsliðsmanninum Degi Ragnarssyni.

Þeir þekkjast ansi vel og því nokkur sálfræði strax í byrjunartaflmennskunni. Dagur vildi ekki lenda í „Birkis-prepp“ í byrjuninni og forðaðist því Petroff-inn sem hann hefur teflt mikið undanfarið. Valdi Dagur frönsku vörnina. Dagur kom svosem ekki að tómum kofanum hjá Vigni og fékk Vignir betra tafl.
Gegnumbrot Vignis virtist vænlegt en á einhverjum tímapunkti missti Vignir tökin á bæði stöðunni og klukkunni og hafði það áhrif á framhaldið og náði Dagur að snúa taflinu sér í vil og ná í ansi óvænt úrslit strax í fyrstu umferð!
Bárður lagði Adam að velli. Bárður tók yfir stöðuna eftir 20.Re4??
Bárður lét ekki bjóða sér þetta tækifæri tvisvar. Svartur fær betra eftir 20…Rxe5!
Gárungarnir héldu að Þorsteinn ætlaði í þjöppupartý á svörtu reitunum gegn Lenku en Lenka varðist vel og útkoma varð tiltölulega stutt jafntefli, eina jafnteflið í umferðinni!
Oliver mætti vel undirbúinn til leiks gegn Josef. Nýtti sér afbrigði með snemmbúnum …Re8 í drottningarbragði þar sem svartur reynir að notfæra sér „töfrareitinn“ á d6. Aman Hambleton getur frætt ykkur meira um það!
Oliver fékk snemma þægilegra tafl og þjarmaði að veiku stöku peði Josefs. FIDE meistarinn vann góðan sigur.

Síðasta skákin til að klárast í umferðinni var bjarna-slagurinn, Björn Hólm gegn Birni Þorfinns. Björn hinn eldri fékk þægilegra tafl í miðtaflinu. Úr miðtaflinu kom óræð staða (sem hentar Þorfinnssyni yfirleitt vel!) þar sem hvítur hafði hættuleg frípeð en svartur biskup.
Ritstjórinn náði að hemja peðin og þétti smátt og smátt vald sitt á stöðunni og náði í sigur.
A-flokkurinn er því strax orðinn athyglisverður og líklegt að ekki verði mikið um jafntefli í flokknum!

B-flokkur
B virðist standa fyrir banaspjót í B-flokknum miðað við fyrstu umferðina! Engin jafntefli litu dagsins ljós og keppendur mættir til að berjast í jöfnum og grjóthörðum flokki!
Sigurður Páll lagði Harald að velli í skemmtilegri skák þar sem Harald lagði mikið undir en náði ekki að uppskera að þessu sinni. Tölvurnar eru kannski hliðhollar hvítum mest af skákinni en svartur var með mjög hættuleg færi lengst af.
Á öðru borði mættust tveir af stigahæstu mönnum flokksins, Ingvar Wu og Jón Trausti. Tveir sem er gaman að sjá aftur við skákborðið eftir smá pásu. Ingvar tefldi vel og veðjaði á að frípeð hans á drottningarvæng væru verðmætari en máthótanir Jóns….Ingvar hafði rétt fyrir sér og vann!
Sigurbjörn lék af sér manni klaufalega í miðtaflinu og Sverrir nýtti sér það.

Stefán Steingrímur tefldi mjög hvasst og skemmtilega gegn Benedikt. Stefán fórnaði nokkrum peðum og hleypti svarta kóngnum aldrei í skjól. Þolinmæði og vönduð taflmennska Stefáns skilaði sigri í hús að lokum.
Jóhann lagði of mikið á stöðuna gegn Arnari og þegar hvíta sóknin varð bensínslaus var Arnar fljótur að mæta í brunarústirnar að ganga frá hvítu stöðunni.
Skemmtileg byrjun og gæti þetta orðið jafn og spennandi flokkur með miklum sviptingum.

C-flokkur

Einni skák var frestað í C-flokknum. Birkir, Kristján Örn og Pétur náðu í góða sigra en Kristján Geirsson og Þorsteinn G. Sigurðsson skildu jafnir.

Opinn flokkur
Lárus Sólberg náðu óvæntum úrslitum á efsta borði í opna flokknum gegn Lárusi. Að öðru leiti röðuðust úrslit alveg eftir elóstigum. Gaman verður að sjá hvað ungu krakkarnir gera í þessum flokki!



















