Íslensku liðin luku í dag leik á Evrópumóti landsliða í skák sem fram fór í Batumi í Georgíu síðustu 10 daga. Eftir frækinn sigur á Ísrael í næstsíðustu umferð náði íslenska sveitin í opna flokki ekki að fylgja þeim góðu úrslitum eftir og urðu að sætta sig við 1-3 tap gegn Danmörku. Kvennaliðið náði frábærum úrslitum og lagði sveit Mónakó að velli 4-0 sem eru ótrúleg úrslit þar sem sveitirnar eru áþekkar á stigum.
Opinn flokkur


Danir stigahærri á öllum borðum en okkar menn voru óhræddir. Það dugði þó ekki til að þessu sinni.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson hefur komist ágætlega frá frumraun sinni með landsliðinu. Því miður var dagurinn í dag ekki hans dagur og hann tapaði sinni fyrstu skák með hvítu í Catalan í einhver ár. Tap með hvítu gegn svona sterku liði er dýrkeypt!
Sasha missti þráðinn snemma í miðtaflinu og svarta staðan sprakk algjörlega út og hvítur fékk ekki við neitt ráðið.

Vignir tefldi Philidor og fékk óvænt færi sem hann missti af í byrjun
13…Bxe5! hefði verið sterkur hér og gefið svörtum betra tafl. Þess í stað lenti Vignir fljótlega í ógöngum og Jonas gekk á lagið og vann snaggarlegan sigur.

Gummi náði að snúa stöðu sem var erfið sér í vil. Thybo missti líklega af því sem Guðmundur var með tilbúið hér:
27…Rxf3 virkar freistandi 28.exf3 og 28…Dxf3 en þá ætlaði Gummi að leika 29.Hb8+ Kg7 og 30.Dc3+ og vinnur drottninguna með Bh6+ í næsta leik.
Taflið snerist og Gummi vann.

Möguleikar Hannesar voru því miður farnir þegar hér var komið við sögu. Mads hafði peði yfir og Hannes átti kannski einhverja jafnteflismöguleika en Mads saumaði að svörtu stöðunni og vann sigur.
Lokatölur því tap 1-3

Úkraínumenn urðu Evrópumeistarar, lögðu Englendinga í lokaumferðinni en þá þegar höfðu Serbar lagt Azera að velli þannig að Úkraínu nægði jafntefli.

Íslenska liði endaði í 29. sæti en var númer 33 í stigaröðinni. Heilt yfir mjög vel viðunandi árangur, 3 sigrar, 2 jafntefli og 4 töp, alls 8 stig.

Guðmundur Kjartansson og Hannes Hlífar stóðu sig best, tefldu báðir með stigaárangur umfram eigin stig. Guðmundur hlutfallslega bestur og með 2536 elóstiga árangur. Vignir hélt vel velli á efsta borði en ungu strákarnir voru aðeins undir pari. Dagur byrjaði vel en gaf svo eftir og sama má í raun segja um Aleksandr.
Kvennaflokkur


Hér mættust jafnar sveitir stigalega. Mónakó voru stigahærri á tveim borðum og við tveimur. Meðalaldur liðanna eitthvað okkur í hag og líklegra að okkar stelpur væru ferskari. Það kom heldur betur á daginn!

Guðrún var nokkuð „street-smart“ í byrjuninni gegn Berezovsku. Svartur drap á e4 í þriðja leik í Petroff sem er nýmóðins lína til að reyna að drepa taflið. Guðrún lék 4.d3 og skipti í raun yfir í uppskiptaafbrigði Frakkans, afbrigði sem hún hafði teflt tvisvar áður á mótinu.
VignirVatnar.is er með þetta afbrigði og minnist reyndar á skiptinguna frá Petroff á síðunni!
Svetlana virtist nokkuð ráðvillt í vörninni og Guðrún var með þægilegra tafl, fyrri til á Elíni Unni (e-línunni) og svartreitabiskupinn mun betri.
25. leikur svarts var skelfilegur 25…Rd6?? og Guðrún svaraði tiltölulega fljótt með 26.Hxe7! og hvítur vinnur of mikið lið, auðveldur sigur!
Í algjöru framhjahlaupi af þessum sigri þá má minnast á sterka innkomu liðsstjóra kvennaliðsins í þessa umferð. Liðsstjórinn náði loks að muna að kaupa kaffi niðri í lobbý áður en hann kom inn í umferðina í stað instant-kaffi viðbjóðsins sem boðið var uppá á mótsstað. Fyrsta borð Íslands naut góðs af því og hinn bollinn var ætlaður til liðsstjóra…nema hann endaði hálfur á gólfinu við mismunandi fögnuð viðstaddra. Skákstjórar fá hrós fyrir að kippa þessu í liðinn á núll einni, höndluðu þetta ófremdarástand mun betur en regluvandamál í skákunum!

Jóhanna var næst upp á dekk! Við höfðum fyrir mót aðeins æft Skandinavíska vörn og nutum þar góðs af VignirVatnar.is síðunni. Jóhanna er komin með full margar 1…g6 Modern skákir og ef andstæðingar eru vel undirbúnir er auðvelt að fá erfiðar stöður snemma í þeirri byrjun. Skandinavinn getur verið traustur og líkt og í gær gekk byrjanaundirbúningurinn nokkuð vel upp. Ince var greinilega ekki að búast við byrjanavali Jóhönnu.
Ince missteig sig snemma í miðtaflinu og eiginlega magnað hvað svarta staðan sprakk út og Jóhanna var alltaf með mun betra tafl og bara spurning um úrvinnslu. Góð praktísk ákvörðun í 38. leik að fórna ekki liði fyrir mát enda eiga menn að þekkja „aldrei að fórna með unnið“ eins og Jóhann kenndi mörgum í Baku 2016!
Staðan orðin 2-0 og viðureignirnar á efstu tveim borðum litu líka bara nokkuð vel út á þessum tímapunkti!

Lenka mætti Dornbusch, 2200 stiga skákkonu sem var í liði Mónakó í opnum flokki á ÓL á Indlandi og mætti okkur mönnum þar! Dornbusch hafði ekki gengið vel á mótinu, mikið af jafnteflum en ekki enn unnið skák.
Lenka tefldi traust í byrjuninni en tók yfirhöndina fljótlega eftir ákvörðun um að taka á sig tvípeð á Elíni Unni en fékk í staðinn sterkan biskup og peðin tóku reiti af hvíta riddaranum. Hér byrjaði Lenka að yfirspila andstæðing sinn, biskupinn lúrði og fékk e5 reitinn, hrókarnir voru aktífir og svo vann Lenka peð og fékk unnið endatafl.
Endataflið var unnið mjög lengi en og sama má segja um endatafl Höllu en það var eiginlega rannsóknarefni hvað andstæðingar okkar voru lengi að gefast upp í gjörsamlega koltöpuðum stöðum.

Hallgerður leitaði í gamalt „Skákskólaafbrigði“ og valdi Alapin afbrigðið í sikileyjarvörninni, þó ekki fyrr en eftir 2…Rc6 hjá svörtum. Halla virtist reyndari í stöðutýpunni og ríghélt í umframpeð sitt og gerði svörtum erfitt fyrir. Yfirspilunin hélt áfram og þegar leið á bætti Halla peðum í sarpinn og fékk kexunnið endatafl sem einhverra hluta vegna stal allavega 30 mínútum af lífi liðsstjóra og liðsmanna þrátt fyrir skínandi sólargeisla úti.
Kórónaði Halla þarna stórglæsilegt mót og tryggði okkur 4-0 sigur!
Ótrúleg úrslit og gekk allt upp, 4-0!

Það voru Pólverjar sem unnu kvennaflokkinn og voru þær í nokkrum sérflokki á mótinu!

Lokaniðurstaðan var 28. sætið en í styrkleikaröðun vorum við númer 32. Liðið fékk 8 stig og sama dreifing og í opna flokknum, 3 sigrar, 2 jafntefli og 4 töp. Betra sæti náðist árið 2023 en fleiri stig komu í hús núna og jafnframt vinningar!

Árangur Hallgerðar stendur að sjálfsögðu uppúr hjá kvennaliðinu, 6 vinningar af 8 og elóstigaárangur upp á 2278 elóstig! WIM norm í hús eins og áður hefur komið fram. Flestir liðsmenn voru að tefla á pari eða betur, Lenka endaði mótið vel og var nokkurn veginn á pari stigalega, Jóhanna og Guðrún aðeins betri en stigin gefa til kynna og Iðunn nokkurn veginn á pari.
Kvennaliðið náði nokkrum góðum „mílusteinum“ (milestones) á þessu móti.
- WIM norm
- 6 vinningar af 8 sem hlýtur að vera einstaklingsmet
- 17 heildarvinningar hjá liðinu, met
- Flest stig á EM frá upphafi, 8 talsins
- Fyrsti 4-0 sigur kvennaliðsins á EM
- Sterkasti andstæðingur sem liðið hefur mætt í fjögurra borða viðureign, Úkraína
Heilt yfir góður árangur hjá báðum liðum og eitthvað til að byggja á til framtíðar. Mikið kom inn í reynslubankann gamla og góða. Næst á dagskrá er svo EM Taflfélaga þar sem meirihluti íslensku keppendanna tekur þátt!
- Heimasíða mótsins
- Chess-results – opinn flokkur
- Chess-results – kvennaflokkur
- Beinar útsendingar – Opinn flokkur
- Beinar útsendingar – kvennaflokkur
- Bein lýsing (ECU TV)















