Þriðja umferð EM taflfélaga hefst kl. 12:15.

Bæði Breiðablik og Fjölnir náðu góðum úrslitum í gær. 3-3 gegn umtalsvert sterkari liðum. Báðar sveitir verða í beinni í dag og mæta sem fyrr sveitum sem eru umtalsvert sterkari á pappírnum.

Akureyringar unnu í gær en Dímon og TR töpuðu. Kvennaliðið var öruggan 4-0 sigur.

Úrslit gærdagsins 

Viðureignir dagsins

Alls eru sex íslensk lið skráð til leiks af 122. Í opnum flokknum eru það:

  • Taflfélag Reykjavíkur (nr. 38)
  • Skákdeild Breiðabliks (nr. 43)
  • Skákdeild Fjölnis (nr. 46)
  • Skákfélag Akureyrar (nr. 58)
  • Dímon (nr. 99)
  • Auk þess teflir Óskar Bjarnason fyrir klúbb frá Lúxemborg.

Í kvennaflokki er kvennalið sem teflir undir nafni Íslands

  • Ísland (15)

Alls tefla 38 skákmenn fyrir Íslands hönd á Ródos og flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar. Aðeins fjórar þjóðir eru fjölmennari en Ísland sem er býsna magnað en það eru: England, Þýskaland, Holland og Grikkland.

- Auglýsing -