Ólafur H. Ólafsson, heiðursfélagi Taflfélags Reykjavíkur og Skáksambands Íslands, lést 16. nóvember síðastliðinn, áttræður að aldri.
Óli H., eins og hann var iðulega kallaður, fæddist 8. janúar 1945. Hann var lunkinn skákmaður og tefldi í landsliðsflokki Skákþings Íslands 1972. Á stúdendamóti landsliða í Púertó Ríkó 1971 tefldi hann fyrir Íslands hönd og gerði meðal annars ótrúlegt jafntefli við sterkan bandarískan meistara, John Grefe, eftir að hafa leikið drottningu sinni af sér.
Fljótlega dró Óli H. úr eigin taflmennsku og helgaði sig félagsmálum. Hann sat í stjórn Taflfélags Reykjavíkur í þrjá til fjóra áratugi og var jafnframt í stjórn Skáksambands Íslands í um tvo áratugi. Hann var formaður Taflfélags Reykjavíkur árin 1994–1996 og var kjörinn heiðursfélagi SÍ á aðalfundi sambandsins á Akureyri 2001.
Óli var lengi formaður kjörbréfanefndar og í Dómstól SÍ og gengdi þeim störfum af mikilli samviskusemi og myndugleika.
Sá sem þetta ritar kynntist Óla H. fyrst um 1980 þegar hann gekk í Taflfélag Reykjavíkur. Við félagar mínir eigum afar góðar minningar af honum. Hann hélt vel utan um hópinn í TR og sá til þess að hópurinn væri samheldinn. Stundum var farið heim til hans í Rauðárstíginn og teflt.
Óli H. var ómetanlegur æskulýðsleiðtogi. Hann var oft fararstjóri í landsliðsferðum unglinga, aðeins í stuttan tíma formaður TR en samt var það tilfinning manns að hann væri sá sem mestu stjórnaði innan TR. Margir af fremstu skákmönnum landsins eiga honum mikið að þakka.
Þolinmæðin þegar hann var að fara yfir bronsið, silfrið og gullið með unga fólkinu er mér mjög minnisstæð.
Hann var mjög fylginn skoðunum sínum og það varð stundum til þess að hann lenti í átökum. Hann varð ekki alveg sáttur við mig þegar ég hætti í TR og stofnaði nýtt félag 1991, og stundum tókumst við á innan stjórnar SÍ. Hann var íhaldssamur og fræg var setning hans: „Ég vara við þessum breytingum.“ Ég var ungur og hlustaði ekki alltaf á reyndari menn – og býsna oft hafði Óli rétt fyrir sér!
Við náðum fljótlega fullkomnum sáttum. Ég minnist þess sérstaklega vel þegar ég heiðraði hann og Braga Kristjánsson á 70 ára afmæli þeirra 8. janúar 2015 – þaðan er þessi mynd af ofan tekin.
Ættingjum og vinum Óla H. votta ég innilega samúð. Minning um góðan mann lifir.
Útför Ólafs H. Ólafssonar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
















