Undanúrslit Íslandsmóts Símans, sem er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans lauk sunnudaginn 23. nóvember þegar þeir Símon Þórhallsson og Vignir Vatnar Stefánsson lögðu andstæðinga sína að velli.
Það var stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson sem lá nokkuð óvænt í valnum gegn FIDE-meistaranum Símoni Þórhallssyni sem þó hefur heldur betur komið á óvart í keppninni og lagði Jóhann Hjartarson að velli í 8-manna úrslitum.
Einvígið fór af stað með skrautlegri fyrstu skák. Símon tefldi eins og herforingi með svörtu mönnunum, losnaði við stakt peð og hafði biskupaparið og vann svo peð. Símon virtist eiga sigurinn vísann þegar ósköpin dundu yfir.
Hér lék Símon 36…Bc2?? sem Bragi drap og skákin á b1-h7 skáklínunni vinnur lið.
Úrvinnslan gekk hinsvegar ekki sem skildi hjá Braga og hann var í raun búinn að missa taflið aftur niður hér…
Þá lék Símon sig í mát 55…Kh6?? og 56.Rf5 er mát!
Í skák númer tvö var komið að Braga að fá gjörunnið tafl með svörtu en tapa svo skákinni. Sviptingarnar voru gríðarlegar í þessari skák eins og þeirri fyrstu eftir að Bragi missti tökin.
1-1 því staðan og þriðja skákin mikilvæg. Símon tefldi heilt yfir betur og enn voru svörtu mennirnir að standa sig betur framan af skák. Í fyrsta skiptið þó sem að vinningurinn landaðist á svart!
2-1 fyrir Símon í hálfleik en í fjórðu skákinni, Ljósleiðaraskákinni náði Símon þriðja sigrinum í röð. Símon var með fína stöðu, hafði náð fínni blokkeringu gegn árás Braga í kóngsindverksri uppstillingu. Bragi lenti í „mouseslip“ og tapaði heilum hrók. Leiðinlegt þegar skákir ráðast á þennan hátt.
Bragi varð nú að vinna restina af skákunum og fékk einhverja möguleika í endataflinu en lék illa af sér í aðeins betri stöðu og úrslitin ráðin.
4-1 fyrir Símon sem er kominn í úrslitin.
Í síðara einvíginu mættust Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára í kappskák. Helgi Áss Grétarsson og Vignir Vatnar Stefánsson.
Helgi mætti klár til leiks og náði að trikka Vigni í fyrstu skákinni. Helgi stóð mun betur með hvítu en heldur tók að saxa á tímann. Helgi hafnaði þráleik, réttilega miðað við stöðuna á borðinu, en tók of langan tíma í það og endaði á að falla á tíma. Staðan þá tvísýn en ívið betri á hvítt skv. tölvunum.
Helgi svaraði með skemmtilegri taflmennsku í módern. Sérstaklega var leikurinn 14…Da5!! skemmtilegur en Helgi fékk „Brilliant“ fyrir þann leik hjá Chess.com reiknum. Helgi fórnaði manni fyrir fullt af peðum og á endanum urðu peðin fimm alls, of mikið í endataflinu. Staðan orðin 1-1.
Helgi lenti í basli með hvítu mennina í þriðju skákinni og of mikill tími fór í að leysa vandamálin. Aftur tapaði Helgi á tíma með hvítu.
Enn og aftur voru svörtu mennirnir betri, Helgi tefdli fína skák og var með betra og svo unnið tafl. Vignir náði einhverju kraftaverkajafntefli og hélt vinningsforskoti.
Helgi varð að vinna næstu skák en enn og aftur kom tíminn í bakið á honum, vissulega með var Vignir með betra og svörtu mennirnir enn að gefa en Helgi féll á tíma í þriðja skiptið með hvítu.
Vignir því kominn í úrslitin eftir 3,5-1,5 sigur.
Það var „gamla gengið“ Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson sem sáu um skákskýringar eftir útlegð í Svartfjallalandi.
Átta manna úrslit
- 2. nóvember: GM Vignir Vatnar Stefánsson – FM Ingvar Þór Jóhannesson 3,5-0,5
- 2. nóvember: GM Bragi Þorfinnsson – IM Björn Þorfinnsson 4-0
- 9. nóvember: GM Helgi Áss Grétarsson – FM Jón Kristinn Þorgeirsson 4-2
- 9. nóvember: GM Jóhann Hjartarson – FM Símon Þórhallsson 3-4
Undanúrslit
- 23. nóvember: GM Bragi Þorfinnsson – FM Símon Þórhallsson 1-4
- 23. nóvember: GM Vignir Vatnar Stefánsson – GM Helgi Áss Grétarsson 3,5-1,5
Úrslit
- 30. nóvember: FM Símon – GM Vignir
Dagskrá
Aðeins eru eftir úrslitin sem fara fram 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)
Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.
Verðlaun
Verðlaunafé mótsins hefur verið hækkað um 100.000 kr. og er nú sem hér segir:
- 200.000 kr.
- 100.000 kr.
- 25.000 kr.
- 25.000 kr.















