Úzbekinn ungi Javokhir Sindarov, aðeins 19 ára, vann Heimsbikarkeppni FIDE 2025 sem lauk í dag í Goa á Indlandi. Hann lagði kínverska stórmeistarann Wei Yi í úrslitaeinvíginu 2,5–1,5, eftir að hafa unnið bráðabanaeinvígin 1,5–0,5 og tryggði sér þar með aðalverðlaunin, 120.000 dollara, og sæti í Áskorendamótinu 2026. Wei Yi fær 85.000 dollara og sæti á sínu fyrsta sæti í Áskorendamótinu.

Áður hafði Andrei Esipenko tryggt sér 3. sætið og síðasta lausa sætið á næsta Áskorendamóti. Andrey Esipenko hafði betur gegn Nodirbek Yakubboev og tryggði sér þriðja sætið, 60.000 dollara og síðasta lausa sætið í Áskorendamótinu.

Með sigri sínum varð Sindarov yngsti Heimsbikarmeistari sögunnar. Nú eru bæði heimsmeistarinn Gukesh Dommaraju og sigurvegari Heimsbikarmótsins 19 ára. Segja má að ákveðin kynslóðaskipti séu í gangi á toppnum í skákinni.

Heimsbikarkeppni FIDE 2025 fór fram 1.–26. nóvember í Goa. Alls tóku 206 skákmenn þátt í útsláttarfyrirkomulagi, með tveimur taflskákum í hverju einvígi og hrað- og bráðabana-skökum ef með þurfti. Heildarverðlaunasjóður var 2 milljónir dollara.

- Auglýsing -