FIDE meistarinn Halldór Grétar Einarsson og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson lögðu báðir sína andstæðinga að velli í fimmtu umferð á Skákþingi Reykjavíkur og eru í efsta sæti með 4,5 vinning. Þeir mætast innbyrðis í toppbaráttuskák í sjöttu umferðinni næstkomandi sunnudag.

Á efsta borði hafði Dagur svart gegn Arnari Milutin Heiðarssyni. Upp kom Nimzo-indversk vörn og ákvað Arnar að fara í vafasama svissneska ostaframleiðslu á hvítu reitunum þegar hann lék 15.f4?
Dagur svaraði 15…c4 16.Be4 og 16…Rxe4. Svartur fékk mikla stjórn á hvítu reitunum og hvítur án hvítareitabiskupsins. Taflið nánast óteflanlegt á hvítt og sjálfteflandi á svart, ekki góð blanda! Dagur vann peð með smá taktískri aðgerð…
27…Hxf4! og svartur vann svo úr stöðuyfirburðunum í mislitu biskupa-endatafli þar sem svartur gat búið til frípeð á hrókslínu báðum megin, búið spil!
Jafntefli varð á öðru borði hjá Jóhanni Ragnars og Jóhanni Ingvars. Uppskiptaafbrigðið í slavneskri vörn getur endað í rólegri kantinum en í miðtaflinu var þónokkur undiralda og færi á báða bóga. Skákin endaði með þráskák og því skiptum hlut.

Halldór Grétar nýtti færið sitt með svörtu til að grípa toppsætið með Degi. Halldór tefldi Grunfeld gegn Sigurði Páli sem virtist nokkuð klár í slaginn. Skákin varð skemmtileg með færi á báða bóga.
Hér lék Sigurður 12.b4 sem er besti leikurinn samkvæmt apparötum. Óhræddur við stigahærri andstæðing sinn því hvítur getur þvingað jafntefli 12.Dxa8 þvingar 12…Hd8 og eftir 13.b4 Dxb4 14.Hd1 á svartur ekkert betra en 14…Hxd2 og þráskáka á b1-b4.
16.b5 hefði gefið hvítum betra tafl en 16.Rb3? skipti eiginlega um eiganda á skákinni! Halldór kláraði svo skemmtilega.
22…Hxd4! 23.Dxd4 Rf4+ og hvítur gafst upp þar sem 24.Kg1 Re2+ 25.Kf1 Rg3++ 26.Kg1 Df1 27.Hxf1 Re2 er kæfingarmát!

Hrafn Loftsson nagar sig væntanlega í handarbökin en hann missti niður unnið endatafl gegn Markúsi Orra. Í tímahraki missti Hrafn ítrekað af nokkuð einfaldri vinningsleið:
72…Bf2 ætti að duga hér þar sem g5 framrásin dugar ekki…svartur fær frípeð á g-línunni og biskupinn valdar svo f8 tímanlega. Hrafn var sleginn einhverri blindu og sá ekki vinningsleiðina og jafntefli niðurstaðan.

Guðmundur Halldórsson minnti á sig og sýndi góða svartreita-þjöppun í miðtaflinu gegn Birki Hallmundarsyni.
Loks er vert að minna á skemmtilega mannsfórn hjá Benedikt Briem sem lagði hinn unga Hauk Víðis Leósson. Benedikt að klifra til baka upp á efstu borðin eftir erfiða byrjun.
17.Ra7!? var mjög athyglisvert hjá Benedikt. 17…Ha8 18.Dxc7 Dxc7 19.Hxc7 Hxa7. Svartur er manni yfir en leppunin á sjöundu er ansi erfið. Haukur hefði með bestu taflmennsku getað hangið á manninum en þá verið í algjörri krippu og nánast leiklaus. Haukur gaf manninn til baka og Benedikt vann vel úr því.
Dagur og Halldór Grétar hafa 4,5 vinning en þeir Jóhann H. Ragnars, Jóhann Ingva og Guðmundur Halldórs hafa allir 4 vinninga. Átta skámenn hafa svo 3,5 vinning.
Skákþingið heldur áfram á sunnudagin þegar sjötta umferð verður tefld. Halldór hefur hvítt gegn Degi, Jóhann Ingva hvítt gegn Guðmundi, Júlíus hvítt gegn Jóhanni H. og Hrafn hvítt gegn Benedikt.
Teflt er á sunnudögum klukkan 13:00 og miðvikudögum klukkan 18:30.
Dagskrá:
- umferð miðvikudag 7. jan 18:30
- umferð sunnudag 11. jan 13:00
- umferð miðvikudag 14. jan 18:30
- umferð sunnudag 18. jan 13:00
- umferð miðvikudag 21. jan kl. 18:30
- umferð sunnudag 25. jan 13:00
- umferð miðvikudag 28. jan 18:30
- umferð sunnudag 1. feb 13:00
- umferð miðvikudag 4. feb 18:30
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Tímamörk:
90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.
Skákstjórn:
Daði Ómarsson og Jon Olav Fivelstad
Aðalverðlaun
- 1. sæti kr. 110.000
- 2. sæti kr. 55.000
- 3. sæti kr. 35.000
Aukaverðlaun
Aukaverðlaun eru þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:
Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.
Keppendur númer 11.-20. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.
Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.
Keppendur númer 31.-40. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.
Keppendur númer 41.-50. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.
Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.
Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.
Oddastig (tiebreaks):
1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger
Þátttökugjöld:
kr. 8.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri.
Frítt fyrir Stórmeistara
Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Oliver Aron Jóhannesson.
Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.
Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

















