Í dag fer fram lokamótið á hinni stórglæsilegu Le Kock mótaröð. Tólf skákmenn unnu sig inn í lokamótið eftir skemmtilega mótaröð sem haldin var í samvinnu VignirVatnar.is, Le Kock og Ölvisholts. Lokamótið verður haldið á Exeter hótelinu (sama hús og Le Kock) í dag og hefjast leikar stundvíslega klukkan 15:00. Áhorfendur eru velkomnir á Le Kock þar sem hægt verður að fylgjast með streymi, töfl verða á staðnum, tilboð á barnum og góð stemmning auk þess sem sterkir skákmenn sjá um veislustjórn.
Mikið verður lagt í lokamótið og glæsileg verðlaun í boði! 12 keppendur unnu sér keppnisrétt á lokamótið eins og áður sagði en tveir þeirra gátu ekki mætt á þessum tíma og var því farið niður úrslitalistann og koma þeir félagar Gauti Páll og Stefán Steingrímur eldhressir inn í úrslitamótið.
Keppendalistinn lítur svona út (skv. lokastöðu á Le Kock mótaröðinni):
- Vignir Vatnar Stefánsson
- Helgi Áss Grétarsson
- Björn Þorfinnsson
- Dagur Ragnarsson
- Örn Leó Jóhannsson
- Bragi Þorfinnsson
- Ingvar Wu Skarphéðinsson
- Sigurbjörn J. Björnsson
- Róbert Lagerman
- Hilmir Freyr Heimisson
- Stefán Steingrímur Bergsson
- Gauti Páll Jónsson
Í úrslitamótinu tefla allir 12 keppendurnir við alla (round-robin). Að loknum umferðunum 11 tefla fjórir efstu útsláttarmót, undanúrslit og úrslit. Einnig er teflt um 3. sætið. Verðlaun á lokamótinu eru eftirfarandi:
Verðlaun eru eftirfarandi.
1. 200 þúsund + gjafabréf
2. 150 þúsund + gjafabréf
3. 100 þúsund + gjafabréf
Chess After Dark strákarnir verða með beina útsendingu og verður hún send út á Vísi meðal annars! Skákmenn eru hvattir til að fjölmenna á Le Kock og Exeter til að fylgjast með fjörinu. Skákborð verða á svæðinu á Le Kock og hægt verður að fylgjast með mótinu á skjá en mótið sjálft fer fram í sal á Exeter hótelinu. Veislustjórn verður á staðnum!

Mótið er komið inn á chess-results og búið er að draga um töfluröð.
Dagskrá – Le Kock mótaröð ÚRSLITAMÓT
Allir við alla (11 umferðir) – 3+2
-
1. umferð: 15:00
-
2. umferð: 15:15
-
3. umferð: 15:30
-
4. umferð: 15:45
-
5. umferð: 16:00
-
6. umferð: 16:15
Stutt hlé eftir 6. umferð
-
7. umferð: 17:00
-
8. umferð: 17:15
-
9. umferð: 17:30
-
10. umferð: 17:45
-
11. umferð: 18:00
Umspil um sæti í útsláttarkeppni (ef þarf) ARMAGEDDON: 18:30
Útsláttarkeppni (KO)
-
Undanúrslit (3+2 tvær skákir): 19:00
-
Úrslit (3+2 tvær skákir): 19:45
Dagskrárliðum verður flýtt ef aðrir dagskrárliðir eru óþarfir!
Reglugerð lokamótsins er eftirfarandi:
Lokamót Le Kock mótaraðarinnar er þannig að fyrst er teflt allir við alla (Round Robin (RR)) alls 11 umferðir. Tímamörk með hefðbundnum hætti 3+2.
Að loknum þessum 11 umferðum munu fjórir efstu vinna sig áfram í úrslitakeppnina þar sem við fáum fjóra efstu í útslátt, undanúrslit og úrslit.
Efsti maður á mótinu (RR) velur sér andstæðing í undanúrslitum og einnig hvaða lit hann byrjar með. Sá sem er hærri af þeim tveimur sem eftir eru velur einnig hvaða lit hann byrjar með í undanúrslitunum.
Oddastig í mótinu (RR) mun ráða lokaröðun manna. Oddastig eru:
-
Sonneborn–Berger
(stig telja meira ef þau fást gegn andstæðingum sem enda ofar) -
Bein viðureign (Direct encounter)
(úrslit innbyrðis) -
Koya
(stig gegn andstæðingum sem enda með >50% skor í mótinu)
Oddastig munu ráða röðun í efstu sætin á mótinu, NEMA ef menn eru jafnir um hituna í fjórða sæti, þ.e. um réttinn til að komast í útsláttarkeppnina. Ef til þess kemur gildir eftirfarandi:
Ef tveir eru jafnir í 4-5. sæti tefla þeir Armageddon skák (hvítur 5 mínútur gegn 4 mínútum hjá svörtum, svartur áfram á jafntefli) um réttinn til að fara í úrslit. Sá sem er ofar á oddastigum velur sér lit í Armageddon skákinni.
Ef þrír eru jafnir í 4-6. sæti tefla 5. og 6. sætið Armageddon skák um réttinn til að tefla Armageddon skák við 4. sætið. 5. sætið velur lit gegn 6. sætinu og svo 4. sætið gegn sigurvegaranum.
Ef fjórir eru jafnir fær sá sem er efstur á oddastigum að velja sér andstæðing og lit. Þeir sem eftir sitja, sá hinn hærri á oddastigum velur lit gegn andstæðingnum. Sá hæsti á oddastigum velur lit í úrslitum.
Ef fimm eða fleiri eru jafnir er farið eftir oddastigum og haldið áfram eins og fjórir hafi verið jafnir. Í því ólíklega tilfelli að nokkrir séu hnífjafnir á öllum oddastigum skal varpa hlutkesti en mótsnefnd áskilur sér rétt til að kalla til fleiri úrslitaskákir í slíkum tilfellum.
















