Sextán manna úrslit Síminn Invitational í netskák halda áfram í kvöld, sunnudaginn og hefjast einvígin klukkan 19:00. Tvö einvígi eru á dagskrá í kvöld.
Í fyrri viðureign kvöldsins mætast FIDE meistararnir Örn Leó Jóhannsson og Bárður Örn Birkisson. Skak.is á von á spennandi viðureign hér en Lengjan er á öðru máli, telur Örn Leó mun líklegri og er stuðull 1.12 á Örn en 3.9 á Bárð. Örn vissulega stigahærri í hraðskák og netskákinni en Bárður er sterkur skákmaður. Hér mun fyrst og fremst ráða úrslitum hvort Bárður nái að ná tökum á tímahrakinu!
Í seinni viðureigninni verður útkljáð hver er besti Ingvarinn í dag! FIDE meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson mætir þá hinum efnilega Ingvari Wu Skarphéðinssyni. Skak.is býst aftur við spennandi viðureign enda Ingvar hinn yngri harður á klukkunni og góður í hraðskák og netskák. Ingvar Þór vissulega stigahærri og reyndari en hér mætast ólíkir stílar og þó Lengjan segi 1.14 á Ingvar Þór má búast við að skipst verði á hægri krókum!
Viðureignirnar eru á Lengjunni.
Skákskýringar í kvöld verða í höndum Björns Ívars og Hilmis Freys.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Almennt um Síminn Invitational
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport.
Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Skákskýringar í vetur verða í umsjón Björns Ívars, Hilmis Freys og Ingvars Þórs.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 200.000 kr
- 100.000 kr.
- 25.000 kr
- 25.000 kr.
Dagskrá
| 8. janúar 26′ | Undanrásir – LOKIÐ |
| 18. janúar. 26′ | 16 manna úrslit – LOKIÐ |
| 25. janúar 26′ | 16 manna úrslit |
| 1. febrúar 26′ | 16 manna úrslit |
| 8. febrúar 26′ | 16 manna úrslit |
| 22. febrúar 26′ | 8 manna úrslit |
| 1. mars 26′ | 8 manna úrslit |
| 15. mars 26′ | Undanúrslit |
| 22. mars 26′ | Úrslit |


















